Handbolti

Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum

Sindri Sverrisson skrifar
Sigurinn góði gegn Austurríki í gær þýðir að staða Íslands er ágæt þrátt fyrir tap gegn meisturunum í dag.
Sigurinn góði gegn Austurríki í gær þýðir að staða Íslands er ágæt þrátt fyrir tap gegn meisturunum í dag. HSÍ

Strákarnir í U20-landsliði Íslands urðu að sætta sig við fimm marka tap gegn ríkjandi Evrópumeisturum þessa aldursflokks, Spáni, á EM í handbolta í Rúmeníu í dag.

Ísland vann fimm marka sigur gegn Austurríki í fyrsta leik í gær en tapaði með sama mun gegn Spáni í dag, 33-28.

Austurríki vann hins vegar tíu marka sigur gegn fjórða liðinu í riðlinum, Lettlandi, og því er Spánn með 4 stig, Ísland og Austurríki 2 stig hvort, en Lettland neðst án stiga.

Það er ljóst að Íslandi dugar sigur gegn Lettlandi á laugardaginn til að tryggja sér annað af tveimur efstu sætum riðilsins og þar með áfram í milliriðlakeppnina.

Ágúst Guðmundsson, sem gengur til liðs við FH frá HK í sumar, átti sannkallaðan stórleik gegn Spáni í dag og skoraði 12 mörk úr aðeins 13 skotum. Stefán Magni Hjartarson kom næstur með þrjú mörk.

Alexander Ásgrímsson varði nokkuð vel í marki Íslands eða 12 af 41 skoti sem jafngildir 29,27% markvörslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×