„Hagræðingar” í Reykjanesbæ Halldóra Fríða Þorvaldssdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifa 9. júlí 2026 19:30 Tveimur mánuðum eftir kosningar leggur Sjálfstæðisflokkurinn fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar málið „úttekt á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar“. Þar hefur nýr meirihluti fundið út hvernig best sé að ná fram hagræðingu, með því að ráða inn fjóra ráðgjafa bæjarstjóra. Aðstoðarmann bæjarstjóra, verkefnastjóra hagræðingaaðgerða, ráðgjafa í hagræðingarteymi ásamt því að auka við stöðu formanns bæjarráðs sem fær launahækkun upp í 50% af þingfararkaupi. Umræddur formaður verður á hærri launum en formaður bæjarráðs í Kópavogi og í Hafnarfirði. Í stað þess að nýta fyrrum bæjarstjóra sem er á biðlaunum hjá sveitarfélaginu hefur verið ráðinn til starfa, í 10 mánuði, annar bæjarstjóri til aðstoðar. Reykjanesbær mun því til áramóta greiða þremur bæjarstjórum laun og svo tveimur frá janúar til og með apríl. Launakostnaður bara við þessa aðgerð verður um 10 milljónir á mánuði út árið 2026 en auðvitað allt í nafni hagðræðingar. Til að setja hlutina í samhengi þá var Haraldur Líndal ráðgefandi við gerð Sóknarinnar árið 2014 í tæpa þrjá mánuði en það var endurreisn sveitarfélags sem var þá í verulegum fjárhagsvanda. Báknið sem umræddir menn ræddu ítrekað um í aðdraganda kosninganna virðist vera að blása út, en í nafni hagræðingar. Allt í boði Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og greitt af okkur íbúum en auðvitað mikilvægt að ná fram hagræðinu hjá sveitarfélagi sem hefur verið í þéttri endurreisn reksturs og fjármála undanfarinn áratug. Höfundar eru Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjanesbær Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Tveimur mánuðum eftir kosningar leggur Sjálfstæðisflokkurinn fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar málið „úttekt á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar“. Þar hefur nýr meirihluti fundið út hvernig best sé að ná fram hagræðingu, með því að ráða inn fjóra ráðgjafa bæjarstjóra. Aðstoðarmann bæjarstjóra, verkefnastjóra hagræðingaaðgerða, ráðgjafa í hagræðingarteymi ásamt því að auka við stöðu formanns bæjarráðs sem fær launahækkun upp í 50% af þingfararkaupi. Umræddur formaður verður á hærri launum en formaður bæjarráðs í Kópavogi og í Hafnarfirði. Í stað þess að nýta fyrrum bæjarstjóra sem er á biðlaunum hjá sveitarfélaginu hefur verið ráðinn til starfa, í 10 mánuði, annar bæjarstjóri til aðstoðar. Reykjanesbær mun því til áramóta greiða þremur bæjarstjórum laun og svo tveimur frá janúar til og með apríl. Launakostnaður bara við þessa aðgerð verður um 10 milljónir á mánuði út árið 2026 en auðvitað allt í nafni hagðræðingar. Til að setja hlutina í samhengi þá var Haraldur Líndal ráðgefandi við gerð Sóknarinnar árið 2014 í tæpa þrjá mánuði en það var endurreisn sveitarfélags sem var þá í verulegum fjárhagsvanda. Báknið sem umræddir menn ræddu ítrekað um í aðdraganda kosninganna virðist vera að blása út, en í nafni hagræðingar. Allt í boði Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og greitt af okkur íbúum en auðvitað mikilvægt að ná fram hagræðinu hjá sveitarfélagi sem hefur verið í þéttri endurreisn reksturs og fjármála undanfarinn áratug. Höfundar eru Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar