„Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. júlí 2026 11:31 Björn Skúlason hefur stýrt hlaðvarpinu Allt í lagi undanfarna mánuði. Skjáskot „Við Halla tókum strax ákvörðun að við ætluðum að skapa okkar framtíð. Við höfum alltaf ákveðið hvernig við viljum gera hlutina en auðvitað koma frávik og það er alltaf eitthvað sem getur gerst,“ segir forsetamakinn, kokkurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Björn Skúlason. Honum er umhugað að skapa sér fallegt líf, hlustar á innsæið og hafði hugrekki til að taka U-beygju í lífinu þegar hann fann að það var nauðsynlegt.
Björn hefur haldið uppi hlaðvarpinu Allt í lagi undanfarna mánuði en hlaðvarpið er hluti af árverkniátaki Hugarafls, Allt í lagi, sem hefur það að markmiði að opna umræðu um andlega heilsu og hvetja fólk til að nýta sér úrræði þegar á reynir. Í lokaþætti seríunnar ræddi Björn við þau Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra Hugarafls og Grétar Björnsson formann Hugarafls. Þau fara yfir þættina í seríunni auk þess sem þau ræða um samtökin, eigin reynslu og hvað þurfi að gera til að bæta geðheilbrigði á Íslandi. Hér má sjá þáttinn í heild sinni: Klippa: Allt í lagi með Birni Skúlasyni - Auður og Grétar Vanlíðan sé ekki náttúrulögmál Þegar Björn spyr Auði og Grétar hverju fólk megi búast við þegar það leitar til Hugarafls svara þau: „Það er vel á móti þér tekið. Það sem mætir öllum er áhugi, umhyggja og vitneskja um það að við förum ekki öll sömu leiðina og þurfum eitthvað mismunandi. Stundum kemur til okkar ungt fólk sem er búið að detta úr nokkrum skólum og ekki komið á vinnumarkað. Sum halda að vanlíðan sé náttúrulögmál sem er auðvitað ekki rétt. Það er eðlilegt að líða stundum illa en svo geturðu komist í gegnum það.“ Þau bæta meðal annars við að Hugarafl hjálpi fólki sem til þeirra leitar að finna tólin sín. Fór á mútur og var rekinn sem söngvari Björn hefur sjálfur rætt um eigin sögu og hvernig hann reynir að skapa sitt líf. „Þetta er ótrúlega fallegt orð, sköpun. Þetta er eitthvað sem ég hugsaði ekki mikið út í áður en við Halla kynntumst og ákváðum að búa til fjölskyldu saman. Við tókum strax ákvörðun að við ætluðum að skapa okkar framtíð. Við höfum alltaf ákveðið hvernig við viljum gera hlutina en auðvitað koma frávik og það er alltaf eitthvað sem getur gerst. Þetta eru væntanlega fræði sem gætu kallast „visualization“ sem fólk hefur ákveðnar skoðanir á, en við höfum alltaf ákveðið að við ætlum að skapa okkar eigin framtíð. Svo lendirðu á vegg eins og ég gerði í fjármálaheiminum sem var ekki að næra mig. Sem betur fer höfðum við hugrekki til að stíga í aðra átt og skapa okkar næsta kafla.“ Björn var í hljómsveit sem unglingur en var rekinn þegar hann komst á mútur og segir kíminn frá því í hlaðvarpinu. „Mín listsköpun fór svo í það að læra að elda og sömuleiðis að hugsa um fjölskylduna.“ Hann segist hafa lært mikið á viðtölum seríunnar og sjái að fólk mæti sér oft með hörku. „Fólk er svo fljótt að gagnrýna sjálft sig og ef það hefur engan stoppara þá byrjar spírallinn og það verður erfiðara að komast út. Þið eruð á þessari vegferð að hjálpa fólki að sjá fyrir sér þá framtíð sem það á skilið,“ segir Björn svo um Hugarafl en starfsemi þeirra má kynna sér betur hér.
Hugarafl - Allt í lagi Geðheilbrigði Hlaðvörp Halla Tómasdóttir Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Fleiri fréttir Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sjá meira