Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júlí 2026 12:44 Svana Huld Linnet, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Reitum, Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, Vífill Ingimarsson, framkvæmdastjóri Nettó, Kjörbúðarinnar og Prís, og Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Aðsend. Drangar, sem eiga meðal annars Nettó, Lyfjaval og Brauð og Co., ætla að opna nýjan verslunarkjarna á Korputúni. Forsvarsmenn Dranga og Reita undirrituðu leigusamning þess efnis í dag.
Verslunarkjarninn mun verða rúmlega 5500 fermetrar í fjórum lágreistum byggingum við Korputún 2 til 8. Framkvæmdir á Korputúni standa yfir og er stefnt að því að verslanirnar opni sumarið 2027. Svona mun Korputún líta út.ONNO ehf. Drangur mun annast rekstur verslunarrýmanna. Verslanir Nettó og Kjötkompanís verða við Korputún 6 og bakaríið Brauð og Co. þar við hlið. Í Korputúni 8 verður opnuð verslun Lyfjavals auk þess sem „nútímalegur veitingastaður“ verður starfræktur þar samkvæmt fréttatilkynningu. Í Korputúni 2 verða síðan tvær þekktar evrópskar verslanir í fyrsta sinn á Íslandi þar sem meðal annars verður boðið upp á snyrtivörur, heimilisvörur og ritföng. Ekki kemur fram hvaða verslanir um ræðir. „Við teljum staðsetningu verslunar- og þjónustukjarna við Korputún afar heppilega því hún mætir vel þörfum íbúa og ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Það er okkur mikilvægt að vera þátttakandi í uppbyggingu Korputúns og við erum sannfærð um að þar verður öflugur áfangastaður fyrir verslun og þjónustu. Markmið okkar er að bjóða viðskiptavinum fjölbreytt úrval þjónustu og verslana sem mætir ólíkum þörfum á einum stað,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga, í tilkynningunni. Vernda vatnsgæði Korpu Reitir annast þróun og uppbyggingu Korputúns og þegar uppbyggingu verður lokið mun svæðið ná yfir 90.000 fermetra. Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir fjölbreyttri blöndu verslunar, þjónustu, skrifstofa og létts iðnaðar. Nettó verður meðal verslana á svæðinu.ONNO ehf. „Sérstaða Korputúns felst meðal annars í því að vernda vatnsgæði Korpu, sem rennur frá Úlfarsfelli í gegnum svæðið, með gegndræpu yfirborði. Einnig verður fjölskrúðugt lífríki verndað með markvissu plöntuvali og að lágmarki 80% þakflata verða gróðurþakin. Gert er ráð fyrir gróðri um allt svæðið sem stuðlar að bættri líðan starfsfólks og gesta,“ segir í tilkynningunni. Lögð verður áhersla á samgöngur og aðgengi um svæðið en þar verður gott framboð bílastæða og vandaðir hjóla- og göngustígar. Fyrirhugað er að Borgarlínan liggi um Korputún með stoppistöð við verslunarkjarnann.
Verslun Mosfellsbær Matvöruverslun Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira