Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. júlí 2026 07:02 Ragnar Jónasson fagnaði fimmtugsafmælinu með stæl í Hvammsvík og Víkingur Heiðar tók vel valin lög. Leifur Vilberg „Ég er óendanlega þakklátur,“ segir rithöfundurinn Ragnar Jónasson sem verður fimmtugur næsta mánudag og tók forskot á afmælissæluna með glæsilegri veislu í Hvammsvík á föstudag. Tímamótin fara vel í Ragnar sem elskar veisluhöld og hefur nánast verið í starfi viðburðastjóra við undirbúninginn. Hann ætlar svo að fagna deginum sjálfum í ensku sveitinni með annarri veislu. „
Ég er örugglega búinn að vera að hugsa þetta í þrjú ár þegar ég sá að þetta væri að nálgast. Fyrir um það bil tveimur árum var ég svo búinn að ákveða þetta nokkurn veginn, ég vildi hafa afmæli á Íslandi fyrir vini hér og afmæli í Bretlandi fyrir vini mína þar,“ segir Ragnar en hann hefur eytt miklum tíma í Bretlandi og auðvitað gefið út fjölda bóka þar. Stóð við gamalt loforð Hvammsvík varð fyrir valinu hér á Íslandi og segir Ragnar svæðið algjöran draumastað. „Það eru ekki mikið af viðburðum þar en þau voru virkilega indæl að hjálpa mér að láta þetta verða að veru leika. Síðan, eins og kom nú fram í ræðunum, þá var Víkingur Heiðar búinn að lofa mér fyrir löngu síðan að hann myndi gera undantekningu og spila í fimmtugsafmæli mínu. Hann spilar aldrei í samkomum og er aðallega bara í tónleikahöllum en var til í að gera þessa undantekningu. Hvorugur okkar gleymdi þessu loforði og svo vildi til að í Hvammsvík var flygill og þá var ekki aftur snúið. Annars hefði ég nú örugglega bara komið með flygil á staðinn.“ Þegar þeir félagar fóru að skoða aðstæður kom upp einstök hugmynd frá Skúla Mogensen, sem er eigandi Hvammsvíkur. „Hann stingur upp á því að við færum flygilinn út í hofið sem er á svæðinu. Mér fannst það ekki verri hugmynd.“ 150 vinir í teiti sumarsins Víkingur tók vel valin lög fyrir gesti sem endaði með afmælissöngnum og segir Ragnar þetta hafa verið algjörlega ógleymanlega stund. „Það var mjög gaman að geta boðið vinum mínum upp á þetta. Smá once in a lifetime tónleikar, utandyra á Íslandi og þurrt allan tímann. Þetta var alveg dásamlegt og hann tók meðal annars tvö af mínum uppáhalds lögum. Þetta heppnaðist dásamlega að mínu viti. Ég er óendanlega ánægður og þakklátur hve margir komu. Þetta voru um 150 manns, allt frá vinum sem ég hef þekkt frá því ég var sex ára yfir í fólk sem ég hef kynnst á undanförnum árum. Þetta var því breiður hópur af mjög góðum vinum úr alls konar áttum sem var þarna saman kominn.“ Fjöldi vina úr ýmsum áttum fagnaði tímamótunum með Ragnari.Leifur Vilberg Upplifun að tala fyrir framan 20 þúsund Hann segir að kvöldið hafi flogið hjá en eftir tónleikana fóru gestir inn í glæsilegan sal, gæddu sér á dýrindis veitingum og kokteilum og fjöldi vina steig á svið með góðar ræður. Minn gamli vinur Stefán Einar stýrði veislunni af mikilli færni og við dönsuðum svo inn í nóttina í sveitinni. Jakob Frímann Magnússon var meðal gesta sem hélt ræðu og gaf Ragnari skemmtilega gjöf sem er saga að segja frá. Jakob Frímann gaf Ragnari verkið Be Love.Leifur Vilberg „Jakob hélt stórtónleika með Kaleo og skipulag hófst fyrir löngu. Hann boðaði mig á fund síðasta vetur þar sem hann vildi fá mig aðeins með í skipulagið. Ég tók því mjög vel eins og flestu en það eru alls konar óvæntir hlutir sem gerast þegar maður er jákvæður á lífið. Við vildum búa til skilaboð til umheimsins. Þetta voru tónleikar á heilögum stað og þá átti vel við að einhver falleg skilaboð fylgdu. Hann valdi orðið mildi á íslensku og ég kom með setninguna Be love á ensku, eða vertu ást. Það var frábært að kynna þetta á sviðinu og tala fyrir framan tuttugu þúsund manns, sem er auðvitað lang stærsti hópur sem ég hef talað við,“ segir Ragnar brosandi og bætir við: „Jakob var svo næs að halda ræðu í afmælinu, söng afmælissönginn og gaf mér svo verk með þessum orðum Be love í afmælisgjöf.“ Gestir fengu bók að gjöf Í miðju afmæli umbreyttist teitið svo í smá útgáfuhóf. „Ég ætla að gefa út bók sem heitir Kistan og er smásagnasafn í tilefni af afmælinu sem kemur út á afmælisdaginn minn en það er í fyrsta sinn sem ég gef út að sumri til. Þetta eru smásögur sem ég hef verið að skrifa síðustu fimmtán árin og sumar hafa aldrei verið gefnar út á Íslandi. Ég gaf dætrum mínum fyrsta eintakið og svo fóru allir gestir út með eintak.“ Ragnar er mikið afmælisbarn og reynir að halda upp á það á ári hverju en þó ekki með eins miklum stæl og í ár. „Afmælisdagurinn eftir tæpa viku verður í Soho Farmhouse og það átti upphaflega að vera aðal partýið en svo endaði Hvammsvík á að verða töluvert stærra. Mér líður smá eins og ég sé búinn að vera að reka viðburðarþjónustu undanfarið, það er svo mikið púsluspil að koma þessu í kring með marga gestalista, viðburði og ákvarðanir en mér finnst virkilega skemmtilegt að geta fagnað með vinum. Svo hefði ég ekki getað látið tvær veislur verða að veruleika nema með frábærri aðstoð minna nánustu síðustu mánuðina.“ Hér má sjá vel valdar myndir frá fjörinu: Flott fjölskylda, dætur Ragnars ásamt föður hans og bróður brostu með afmælisbarninu.Leifur Vilberg Rithöfundurinn Auður Ava, myndlistarmaðurinn Snorri Ásmundsson og Ragnar Jónasson afmælisgæi.Leifur Vilberg Ragnar og Tatíana glæsipar.Leifur Vilberg Viktor Ingi Lorange, Jafet Máni Magnúsarson, Rúnar Gíslason, Kamilla Einarsdóttir og Ragnar Jónasson.Leifur Vilberg Ragnar ásamt Þorgerði Katrínu utanríkisráðherra.Leifur Vilberg Heiða Magnúsdóttir eigandi Ásmundarsals ásamt afmælisbarninu.Leifur Vilberg Flottir bræður, Ragnar og Tómas Jónassynir.Leifur Vilberg Glæsilegir vinir.Leifur Vilberg Flottur hópur leikara gaf Ragnari plakat úr Dimmu þáttunum, sem voru gerðir eftir bókinni hans. Leifur Vilberg Eliza Reid fyrrverandi forsetafrú mætti í grænum jakka.Leifur Vilberg Hjónin Víkingur Heiðar og Halla ásamt Daníel Bjarnasyni og Ragnari.Leifur Vilberg Ragnar og Sigþrúður Ármann.Leifur Vilberg DJ Gullfoss og Geysir hélt uppi stemningunni.Leifur Vilberg Erla Björnsdóttir og Rakel Þórhallsdóttir.Leifur Vilberg Ragnar og Skúli Mogensen flottir.Leifur Vilberg Ellen Ýr, Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyftingakappi og Ragnar.Leifur Vilberg Ragnar og Þorgrímur Þráins báðir elegant á því.Leifur Vilberg Áslaug Arna í góðum félagsskap.Leifur Vilberg Glæsilegt umhverfi.Leifur Vilberg Gleðin við völd!Leifur Vilberg Glæsilegu hjónin Þorsteinn B. Friðriksson athafnamaður og Rós Kristjánsdóttir gullsmiður.Leifur Vilberg Magnþrungnir tónleikar.Leifur Vilberg Ragnar og Víkingur Heiðar brosmildir.Leifur Vilberg Stefán Einar stýrði veislunni.Leifur Vilberg Víkingur Heiðar fékk gesti til að syngja afmælissönginn.Leifur Vilberg Ragnar bauð gesti velkomna.Leifur Vilberg Katrín Jakobsdóttir og Ragnar eru góðir vinir og hafa meðal annars skrifað bækur saman.Leifur Vilberg Fegðarnir Jónas Ragnarsson og Ragnar Jónasson fínir. Leifur Vilberg
Samkvæmislífið Bókaútgáfa Tónlist Víkingur Heiðar Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Sjá meira