Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Árni Sæberg skrifar 15. júlí 2026 14:31 Friðbert, Þorbjörg og Sigvaldi eru nú meðal eigenda BBA//Fjeldco. BBA//Fjeldco Friðbert Þór Ólafsson, Sigvaldi Fannar Jónsson og Þorbjörg Ásta Leifsdóttir hafa bæst við í eigendahóp BBA//Fjeldco, en þau hafa öll starfað hjá félaginu um árabil.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að í framhaldi af fjárfestingu AGRD í BBA//Fjeldco haldi félagið áfram að byggja upp breiðan hóp sérfræðinga til að þjónusta viðskiptavini í flóknum og krefjandi verkefnum. „Við erum afar stolt og ánægð að bjóða Friðbert, Sigvalda og Þorbjörgu velkomin í eigendahópinn. Þau hafa sýnt framúrskarandi fagmennsku og forystu í sínum verkefnum og hafa gegnt mikilvægu hlutverki í þeim árangri sem BBA//Fjeldco hefur náð undanfarin ár. Við leggjum ríka áherslu á að byggja upp eigendahóp sem sameinar sérfræðiþekkingu, sterka leiðtogahæfni og drifkraft til að þróa þjónustu okkar áfram á komandi árum,“ er haft eftir Halldóri Karli Halldórssyni, faglegum framkvæmdastjóra BBA//Fjeldco. Þá segir að Friðbert sérhæfi sig í almennum félaga- og fyrirtækjarétti ásamt kaupum og sölum fyrirtækja. Hann hafi komið að ótal mörgum flóknum og umfangsmiklum viðskiptum fyrir bæði innlenda og erlenda viðskiptavini. Friðbert hafi lokið M.L gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019, þar sem hann hafi lagt sérstaka áherslu á samspil laga og gervigreindar. Sigvaldi sérhæfi sig í ráðgjöf við banka og fyrirtæki í tengslum við fjármögnun, sem og á sviði almenns félaga- og fyrirtækjaréttar. Hann hafi veitt ráðgjöf í mörgum af stærstu fyrirtækjaviðskiptum landsins og fjármögnun fyrirtækja seinustu ára, bæði til innlendra og erlendra viðskiptavina. Sigvaldi hafi lokið Mag. Jur. gráðu frá Háskóla Íslands árið 2017 og einnig numið við Columbia háskóla á námstímanum. Þorbjörg Ásta sérhæfi sig í samkeppnisrétti og hafi komið að fjölmörgum af stærstu samrunamálum á Íslandi á undanförnum árum. Hún búi yfir víðtækri reynslu af ráðgjöf til innlendra og erlendra fyrirtækja og hafi verið leiðandi á samkeppnisréttarsviði BBA//Fjeldco, sem hafi vaxið ört á undanförnum árum. Áður hafi hún starfað á samkeppnisréttarsviði Kromann Reumert í Kaupmannahöfn. Þorbjörg kenni jafnframt samrunaeftirlit við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hún hafi lokið M.L gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2017, að loknu B.A. námi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík.
Lögmennska Vistaskipti Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira