Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar 16. júlí 2026 10:01 Líkt og fjöldi Íslendinga hef ég undanfarnar vikur fylgst með umræðum um matvælaverð á Íslandi í samanburði við ungverska kaffibolla, spænskar steikur, mjólkurafurðir í Frakklandi og svo mætti lengi telja. Þetta áhugamál hefur skilað því að ég er margs fróðari, í gær lærði ég til dæmis að lítri af mjólk kostar 380 kr. út í búð. Umræðan er að stærstu leyti leidd áfram af kíkjurum og gægjurum og narratífið er yfirleitt það sama, innganga í ESB og upptaka evru þýðir 25% lægra matvöruverð á veitingastöðum og úti í búð. Áður hafði ég lært að við það eitt að ganga í Evrópusambandið færist þriðjudagstilboðið á Domino‘s aftur nær gamla góða þúsundkallinum. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis hefur svo kennt mér að evruútgáfan af kjúklingi sigurvegarans á Saffran verður á þrjúþúsund, þá í stað fjögurþúsund áður. Íslensk laun en evrópsk verð Að gamni ákvað ég að líta á nokkra ársreikninga ýmissa veitingastaða. Að meginstefnu skiptast útgjöld þeirra í þrennt, í fyrsta lagi laun og launatengd gjöld starfsfólk, í öðru lagi annan kostnað, s.s. leigu, skrifstofu- og stjórnunarkostnað o.s.frv., og loks hráefniskostnað. Af þeirri yfirferð fæ ég ekki annað séð en að gægjararnir séu heldur að draga úr heldur en hitt. Innkaupakarfan hlýtur einfaldlega að lækka um miklu meira en fjórðung við inngöngu í sambandið. Ársreikningayfirferðin leiddi í ljós forsendur gömlu góðu 30-30-30-10 virðast brostnar. Hlutfall launa af tekjum veitingastaðanna var að jafnaði á bilinu 40-45%, kostnaðarverð seldra vara á bilinu 25-35% og annar kostnaður myndaði afganginn. Hagnaðarhlutfall staðanna, þ.e. þeirra sem voru í plús, náði afar sjaldan tíu prósentum, eiginfjárstaða nokkuð misjöfn og í einhverjum tilfellum blasti við talsverð áskorun við að standa undir greiðslum skulda næstu tólf mánaða. Af orðræðu gægjara má ráða að við inngöngu í Evrópusambandið verði laun hér óbreytt og lítið hefur farið fyrir fullyrðingum um að sérfræðiþjónusta, skrifstofukostnaður eða ýmis konar snatt muni skreppa stórkostlega saman. Upptaka evru á síðan að skila sér í mun lægri fjármagnskostnaði, sem hefur að jafnaði tilhneigingu til að ýta eignaverði upp á við og eftir atvikum leigu. Þá má ekki gleyma því að evrópski fyrirtækjaflotinn liggur víst í vari við mörk efnahagslögsögunnar og bíður þess í röðum að gjörningaveðri krónunnar ljúki til að geta komið með alvöru samkeppni til landsins. Boðuð stórsókn þeirra á íslenskan markað hlýtur að hafa einhver áhrif á eftirspurn og verð atvinnuhúsnæðis. Laun lækka ekki og óvíst um aðra kostnaðarliði. Til að reikningsdæmið gangi upp, um 25% lækkun til neytanda veitingastaða, gefur því auga leið að innkaupaverð matvæla mun þurfa að lækka miklu meira en það. Tækifæri til að spara enn meira Hinn skýringarkosturinn er að eitthvað fleira en bara evra og ESB hafi áhrif á verð matvöru og þjónustu. Í því samhengi má til dæmis rifja upp að nýverið afréð rótgróið fyrirtæki að loka öllum kaffihúsum sínum en halda áfram kaffibrennslu og sölu á kaffi í matvöruverslunum. Það var sennilega krónunni að kenna og mögulega hefðu þau getað lært eitthvað af Ungverjum. Þar er kaffið ódýrt og allt í blóma. Ýmsar úrtöluraddir hafa reynt að draga kjarkinn úr aðildarsinnum og reynt að drepa umræðunni á dreif með hugtökum á borð við kaupmátt, raunstærðir, nafnstærðir, samhengi launa og verðlags, gengisáhrif og öðrum leiðinlegum hagfræðiorðum sem gera öll partý leiðinlegri. Allt slíkt hefur fólk látið sem vind um eyru þjóta. Í ljósi þess ætla ég að gefa mér að jákvæðum skjátlist ekki, enda drifin áfram af heiðarleika og ástríðu fyrir almannahag, og að matvælaverð lækki automatískt um fjórðung við upptöku evru. Sú forsenda vekur upp þá spurningu hvort það mætti ekki hugsa enn ódýrar. Ef menn vilja vera með landamæri að Evrópu væri hægt að sætta sig við Marokkó, hvar matvælaverð er enn lægra en í ESB. Matvælaverð í Egyptalandi, Paragvæ, Pakistan og Úsbekistan, svo dæmi séu tekin, er til að mynda enn lægra en í Evrópusambandinu. Það mætti taka upp gjaldmiðla þeirra landa, nú eða einhvern annan nánast valinn af handahófi, og þá yrði matvara hér á landi nánast ókeypis. Hver myndi slá hendinni á móti því? Höfundur er starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Óli Eiðsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar