Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Áróra L Davíðsdóttir skrifar 17. júlí 2026 12:12 Einar Bárðason segir að áhugavert verði að sjá hvort tónleikagestir ákveði að fara til Eyja eða norður á Akureyri um verslunarmannahelgina. Samsett Greint var frá því í gær að óvenju margir miðar væru lausir í Herjólf og hægt hafi gengið að leigja út húsnæði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Viðburðarhaldari með meiru segir vangaveltur um aðsóknina ekki óeðlilegar en að mikið álag hafi verið á tónleikagestum í sumar. Margar breytur spili inn í ferðalög fólks um þessa stærstu ferðahelgi ársins en sú ákvörðun verði líklega tekin mánudaginn fyrir helgina sjálfa.
Umræðan meðal íbúa í Vestmannaeyjum er að það verði heldur fámennari Þjóðhátíð í ár heldur en áður. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir óvenjulega marga miða eftir í ferjuna og fréttastofu hafa borist ábendingar um að það gangi almennt hægt og jafnvel brösuglega að leigja út íbúðir og hús miðað við undanfarin ár. Einar Bárðason, framkvæmdastjóri SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, og viðburðahaldari með meiru, segir vangaveltur um aðsókn Þjóðhátíðar ekki óeðlilegar en segir framboð á tónlistarviðburðum í sumar hafa verið óvenju mikið en hann var til viðtals í Reykjavík síðdegis í gær. Í byrjun sumars hafi gríðarlegt magn miða á tónlistarhátíðir selst. Rúmlega fjörutíu þúsund miðar hafi selst á fyrstu fjórum eða fimm vikum sumars, „sem er gríðarlegt magn af bæði athygli og náttúrulega peningum.“ „En ég myndi fara varlega í það að lýsa yfir andláti Þjóðhátíðar. Hún er ótrúlega seig og hefur staðið ýmislegt af sér þessi hundraðþrjátíu og eitthvað ár sem hún er búin að vera í boði.“ Bergmál hafi kostað fólk bæði peninga og athygli Einar segir Bergmál á Þingvöllum hafa verið fyrirferðarmikið verkefni sem „fékk gríðarlega mikla athygli og sópaði til sín á síðustu metrunum allt að tuttugu þúsund miðakaupendum, svona miðað við fréttaflutning allavega. Það er gríðarlegt magn af miðum sem fer þar út. Það eru bara Ed Sheeran og Justinarnir [Bieber og Timberlake] kannski sem hafa tekið jafn mikið af miðum til sín.“ Fólk hafi þurft að huga að samgöngum, bílastæðum og aðgengi á Þingvöllum sem hafi kostað fólk bæði peninga og athygli. Hann telur því ekki óeðlilegt að gestir séu tvístígandi með miðakaup á Þjóðhátíð miðað við „atið og álagið á miðakaupendum.“ Sömuleiðis séu Lopapeysan, tónlistarhátíð Írskra daga á Akranesi, Kótilettan á Selfossi og Ein með öllu á Akureyri stórar hátíðir sem hafi tekið mikið til sín. Þar áður hafi Bubbi Morthens verið með tvenna afmælistónleika í Laugardalshöll, þar sem tólf þúsund miðar hafi selst, og Herra Hnetusmjör með fjölskyldu- og stórtónleika í Höllinni. Einnig hafi selst upp á tvenna tónleika Stefáns Hilmarssonar í Hörpu. „Fólkið sem er á hreyfingu og tekur þátt í þátt í lífi og fjöri er kannski komið að þolmörkum. En svo getur vel verið að íslenska hagfræðin og ákvörðunartakan taki við og menn segi: Tökum eitt í viðbót.“ Spurning hvort fólk haldi norður eða til Eyja Útborgunardagur sé enn ein breytan í ákvörðunum landsmanna um ferðalög verslunarmannahelgarinnar en helgin sé frekar snemma á ferðinni þetta árið. Einar segir að kúnnahópur hátíða helgarinnar „lifi árið af á þremur útborgunardögum“ en föstudagurinn teygi sig inn í júlí og 1. ágúst lendi á laugardegi sem gæti haft áhrif á miðasölu. Mánudaginn fyrir verslunarmannahelgi kallar Einar „súper-mánudag“ en þá verði ákveðinn vendipunktur í miðasölu. „Þá mun skemmtanaþyrst fólk opna langtímaveðurspána, kíkja á stöðuna á bankabókinni og taka ákvörðunina,“ segir Einar í Facebook-færslu. Áhugavert verði að sjá hvort tónleikagestir ákveði að fara til Eyja eða norður á Akureyri. „Gamlir fastagestir á þjóðhátíð“, FM95BLÖ, troða upp á hátíðinni Ein með öllu á Akureyri sömu helgi og Einar segir tónleikana því skapa ákveðna samkeppni. Rigning og dumbungur á suðvesturhorninu síðustu vikur hafi áhrif en fólk sé ekkert sérlega spennt fyrir því að skella sér á útihátíð eða í útilegu og veðrið á Þjóðhátíð síðustu tvö árin sé heldur ekki hvatning. „Ég held að miðakaupendur séu núna að fatta að það eru tvær vikur í verslunarmannahelgi. Þeir eru að velta fyrir sér hvort þeir ætli að fara norður eða til Vestmannaeyja eða hvort þeir ætli bara yfirhöfuð að gera eitthvað allt annað. Sú ákvörðun mun verða tekin í hádeginu mánudaginn 26. eða 27. júlí.“ „Ég er alveg sannfærður um að landinn fer af stað, það er bara spurning hvert.“
Þjóðhátíð í Eyjum Vestmannaeyjar Verslunarmannahelgin Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira