Verslunarmannahelgin

Fréttamynd

Gríðar­legur fjöldi fyrir norðan og mikil ó­þolin­mæði á heim­leið

Lögregla segir að ökumenn á heimleið í gær á síðasta degi Verslunarmannahelgar hafi verið helst til of óþolinmóðir en tvö umferðarslys urðu vegna tilrauna til framúraksturs á Norðurlandi. Hátíðir á Akureyri og í Reykjavík voru í fjölmennari kanti en áður og skipuleggjendur í Eyjum eru sáttir við sitt.

Innlent
Fréttamynd

Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim

Veðurblíðan um Verslunarmannahelgina var sannarlega áberandi á samfélagsmiðlum og stjörnur landsins ferðuðust landshorna á milli fyrir stærstu djammhelgi ársins. Minna var um ferðalög erlendis en förðunarfræðingurinn Heiðdís Rós er meira að segja komin til Íslands eftir fjölda ára fjarveru.

Lífið
Fréttamynd

„Ég er svo­lítið svífandi á bleiku skýi“

Tónlistarmaðurinn Ágúst Brynjarsson leiddi brekkusönginn á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær, á lokadegi hátíðarinnar. Hann segir frumraun sína í að stýra söngnum hafa gengið eins og í sögu og vel hafi tekist að blanda saman gömlu hefðunum við ný lög. 

Lífið
Fréttamynd

Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna

Á sjötta þúsund sótti um helgina Unglingalandsmót UMFÍ sem fram fór á Sauðárkróki í ár. Ný keppnisgrein í tröppuhlaupi vakti kátínu en keppt var í tuttugu greinum alls. Keppendur eru ellefu hundruð börn og ungmenni af landinu öllu.

Lífið
Fréttamynd

„Við getum ekki kvartað undan veðrinu“

Kærleikur og stemning eru í loftinu í Neskaupsstað um þessar mundir enda stendur hátíðin Neistaflug yfir nú um verslunarmannahelgina. Ræst hefur úr spám og nú er sól og blíða í bænum.

Lífið
Fréttamynd

Siggi stormur sár en dregur ekki í land

Siggi stormur segir að veðurspár fyrir verslunarmannahelgina hafi í megindráttum gengið eftir og Akureyringar geti vel við unað. Skipuleggjendur á Norðurlandi eru ósáttir og vilja meina að ótímabærar yfirlýsingar hafi fælt gesti frá. Lögreglan telur að fleiri séu á Akureyri nú en í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tóku níu og nutu lið­sinnis sér­sveitar vegna staks egg­vopns

Níu voru handteknir og einn vistaður í fangageymslu vegna vopnalagabrots á tónleikasvæði á Akureyrarvelli í gærkvöld. Fjórir voru handteknir í bænum vegna minniháttar fíkniefnalagabrots og einn þeirra vistaður í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um stórfellda líkamsárás þar sem einstaklingur endaði með beinbrot í andliti. 

Innlent
Fréttamynd

Tap vegna ó­tíma­bærra veðurspáa hlaupi á milljónum

Skipuleggjendur útihátiða á Norðurlandi eru búnir að fá sig fullsadda af glæfralegum yfirlýsingum veðurspámanna að sunnan. Sérstaklega þykir þeim veðurspá Sigurðar Ragnarssonar, Sigga Storms, súr í brotið. Tap vegna veðurspárinnar hlaupi á milljónum fyrir sveitarfélögin þrátt fyrir blankalogn og heiðan himinn.

Innlent
Fréttamynd

Veðrið „eins og eftir pöntun“

Formaður Þjóðhátíðarnefndar segir að fyrsti dagur hátíðarhaldanna hafi gengið vel í gær. Gestir séu almennt ánægðir og verðið sé eins og eftir pöntun.

Innlent
Fréttamynd

Sex fíkni­efna­mál komu upp í Eyjum

Sex fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og hafði lögregla afskipti af einum vegna ölvunaraksturs. Einnig var nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en fíkniefnamálin eru sögð minniháttar. Rólegra virðist hafa verið hjá lögreglunni fyrir norðan. 

Innlent
Fréttamynd

Fiðrildi og flug­eldar í maganum í Herjólfs­dal

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var sett í sól og blíðu í Vestmannaeyjum í dag og allt er til reiðu fyrir kvöldið sem er nú að ganga í garð. Kassagítarinn er þegar farinn að hljóma úr hvítu tjöldunum. Fréttamaður okkar tók stöðuna í dalnum.

Lífið
Fréttamynd

Selur af­láts­bréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar

Verslunarmannahelgin er gengin í garð og landsmenn flykkjast um land allt í partíhug. Sumir hafa það í hyggju að ganga aðeins of hratt um gleðinnar dyr en Snorri Ásmundsson listamaður sá sér leik á borði og hefur hafið sölu á aflátsbréfum handa þeim sem vilja baktryggja sig í augum Guðs almáttugs.

Lífið
Fréttamynd

Þjóð­há­tíð sett í blíð­viðri í Eyjum

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum var formlega sett klukkan hálf þrjú í dag og er líf og fjör þegar komið í Herjólfsdal. Fjöldi gesta var þegar mættur til Eyja í gær þegar Húkkaraballið svonefnda fór fram.

Lífið
Fréttamynd

Búast við fjöl­mennasta Innipúka til þessa

Nóg verður um að vera um verslunarmannahelgina sem nú er gengin í garð. Skipuleggjendur Einnar með öllu ætla ekki að láta rigningu á sig fá og finna fyrir því að Blö-menn hafi aukið áhugann á Akureyri yfir helgina. Skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík búast við sinni stærstu hátíð til þessa.

Innlent
Fréttamynd

Stærsta umferðarhelgi ársins hafin

Fyrstu vísbendinguna um að verslunarmannahelgin sé að renna í garð má finna rétt fyrir utan Selfoss. Löng bílaröð hefur myndast en gera má ráð fyrir að einhverjir farþeganna séu á leið til Vestmannaeyja.

Innlent
Fréttamynd

Heilum gámi af kampa­víni stolið af Öl­gerðinni

„Við héldum að sendingin væri komin af stað til Íslands en svo kom bara í ljós að það var enginn gámur til að sækja. Flutningsaðilinn greip bókstaflega í tómt þarna úti. Það var búið að ræna allri sendingunni.“

Innlent
Fréttamynd

Hvað er í boði um verslunar­manna­helgina?

Ein stærsta ferðahelgi ársins er að renna upp þar sem landinn mun leggja leið sína á hinar ýmsu hátíðir víðs vegar um land. Hér er hægt að sjá hvað stendur ferðalöngunum til boða um verslunarmannahelgina.

Innlent
Fréttamynd

Skímó á skikkan­legum tíma fyrir ömmur og afa

„Markhópurinn okkar vill syngja úr sér lungun, komast heim á skikkanlegum tíma og vakna svo eldhress daginn eftir til að fara með barnabörnin í ungbarnasund. Svona er lífið“ segir Addi Fannar, gítarleikari Skítamórals en hljómsveitin stendur fyrir sveitaballi um Verslunarmannahelgina.

Tónlist
Fréttamynd

Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki

Líklegast er að sólin muni leika við landsmenn á sunnan og vestanverðu landinu um Verslunarmannahelgina á meðan rigning er í kortunum í öðrum landshlutum. Þetta segir veðurfræðingur sem telur ólíklegt að spár fyrir helgina muni breytast mikið á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Segir gríðar­legt á­lag á miðakaupendum í sumar

Greint var frá því í gær að óvenju margir miðar væru lausir í Herjólf og hægt hafi gengið að leigja út húsnæði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Viðburðarhaldari með meiru segir vangaveltur um aðsóknina ekki óeðlilegar en að mikið álag hafi verið á tónleikagestum í sumar. Margar breytur spili inn í ferðalög fólks um þessa stærstu ferðahelgi ársins en sú ákvörðun verði líklega tekin mánudaginn fyrir helgina sjálfa. 

Innlent