Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Agnar Már Másson skrifar 31. júlí 2026 15:14 Innipúkinn er í Reykjavík að vanda um verslunarmannahelgi. Aðsend Nóg verður um að vera um verslunarmannahelgina sem nú er gengin í garð. Skipuleggjendur Einnar með öllu ætla ekki að láta rigningu á sig fá og finna fyrir því að Blö-menn hafi aukið áhugann á Akureyri yfir helgina. Skipuleggjendur Innipúkans í Reykjavík búast við sinni stærstu hátíð til þessa.
Stíf dagskrá verður víða um landið um verslunarmannahelgina. Meðal stærstu hátíðanna eru Ein með öllu á Akureyri, Neistaflug í Neskaupstað, Innipúkinn í Reykjavík og Þjóðhátíð í Eyjum. Þá verður einnig nóg um að vera á Vestfjörðum, svo sem Nábrókin og Göngudagar, og einnig fjölskylduhátíðir víða um landið, til dæmis á Flúðum og í Vatnaskógi – svo eitthvað sé nefnt. Sjá einnig: Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina Rigningu er spáð á Norður- og Austurlandi í kvöld en bongóblíðu á vesturhluta landsins. Skipuleggjendur Einnar með öllu á Akureyri ætla ekki að láta veðrið á sig fá en hefur að miklu leyti ræst úr spánni. „Við höfum litlar áhyggjur af þessu en þó að það rigni nokkrum dropum er það bara frískandi og gott fyrir grasið. Við erum ótrúlega bjartsýn og veðurspáin hefur skánað með hverjum klukkutímanum. Þannig að við erum ekki einu sinni viss um að það rigni,“ segir Lovísa Oktavía Eyvindsdóttir, sem er meðal skipuleggjenda Einnar með öllu. Í ár ætla liðsmenn FM95BLÖ, sem hafa yfirleitt troðið upp á Þjóðhátíð í Eyjum, að halda sína eigin tónleika á Akureyri á sunnudag. Lovísa kveðst finna fyrir aukinni aðsókn til Akureyrar fyrir vikið. „Við finnum alveg fyrir því að þeir hafa stóran aðdáendahóp sem fylgir þeim hvert sem þeir fara,“ segir Lovísa, sem býst við allt á milli tíu til tuttugu þúsund manns á hátíðinni. Útlit er fyrir að veður verði einna best í höfuðborginni. Einnig var rætt við Eldar í kvöldfréttum Sýnar í gær. „Það er mikil stemning fyrir Innipúkanum í ár,“ segir Eldar Ástþórsson, skipuleggjandi Innipúkans, en hann segir að útlit sé fyrir að hátíðin í ár verði stærsti Innipúki til þessa. En vissulega sé ekki pláss fyrir fleiri en þúsund í Austurbæjarbíó, þar sem hátíðin er að mestu haldin. „Sérstaða Innipúkans er að sjálfsögðu að hann fer fram innandyra en þetta frábæra veður hjálpar okkur að sjálfsögðu að skapa góða stemningu í miðborginni og við færum okkur kannski aðeins út á stétt ef veður heldur áfram að leika svona við okkur um helgina.“
Verslunarmannahelgin Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira