Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. júlí 2026 10:07 Gunnar Þór Jónsson, Gunnar Ólason, Jóhann Bachmann, Arngrímur Fannar Haraldsson og Herbert Viðarsson skipa hljómsveitina Skítamóral. Þeir verða með sveitaball um helgina. Gassi „Markhópurinn okkar vill syngja úr sér lungun, komast heim á skikkanlegum tíma og vakna svo eldhress daginn eftir til að fara með barnabörnin í ungbarnasund. Svona er lífið“ segir Addi Fannar, gítarleikari Skítamórals en hljómsveitin stendur fyrir sveitaballi um Verslunarmannahelgina.
Laugardagskvöldið 1. ágúst snýr Skítamórall aftur í rætur sínar þegar hljómsveitin stígur á svið í Aratungu í Biskupstungum. Það er orðið þó nokkuð síðan sveitin lék síðast á hefðbundnu sveitaballi og tilhlökkunin innan hljómsveitarinnar er mikil. Aratunga hefur í gegnum árin verið vettvangur fjölmargra eftirminnilegra dansleikja og nú ætla Skítamóralsmenn að endurvekja þá stemningu sem einkenndi íslensk félagsheimili um áratugaskeið. „Það er eitthvað sérstakt við sveitaböllin. Þar er fólk mætt til að skemmta sér, syngja með og hitta gamla vini. Það er stemning sem verður ekki búin til annars staðar,“ segir sveitin en þeir voru vanir því að spila jafnvel til morguns. Addi Fannar, gítarleikari, skýtur inn: „Eini munurinn frá fyrri böllum er kannski sá að við förum á svið klukkan 21:00 og það er 25 ára aldurstakmark. Markhópurinn okkar vill syngja úr sér lungun, komast heim á skikkanlegum tíma og vakna svo eldhress daginn eftir til að fara með barnabörnin í ungbarnasund. Svona er lífið.“ Skímómenn eru fullir tilhlökkunar að troða upp um helgina.Aðsend Kvöldið verður með hefðbundnu sveitaballasniði þar sem Skítamórall fer með öll sín vinsælustu lög og gestir geta átt von á fjöri fram á kvöld. „Þetta verður bara alveg eins og í old days. Það verður enginn bar, þannig að fólk getur stungið pelanum í vasann en fengið sér einn bauk með. Það hefur nú alltaf verið hluti af sveitaballamenningunni.“ Hljómsveitina skipa Gunnar Ólason, Jóhann Bachmann, Herbert Viðarsson, Gunnar Þór Jónsson og Arngrímur Fannar. Skímó er eitt stærsta nafna aldamótakynslóðarinnar og lög eins og Farin, Myndir, Svífum, Ennþá, Fljúgum áfram og fleiri eru meðal einkennislaga þessa kröftuga tímabils í íslenskri tónlist. Viðburðurinn hefst klukkan 21:00 og verður dansað fram til miðnættis. Hér má nálgast nánari upplýsingar.
Tónleikar á Íslandi Tónlist Verslunarmannahelgin Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira