Viðskipti innlent

Lögheimilisskráningar ekki fleiri síðan í fyrra

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Í ágúst 2025 fluttu 5667 einstaklingar lögheimili sitt. Ekki hafa fleiri flutningar orðið í einum mánuði síðan þá
Í ágúst 2025 fluttu 5667 einstaklingar lögheimili sitt. Ekki hafa fleiri flutningar orðið í einum mánuði síðan þá Vísir

Þjóðskrá hefur birt tölur um skráða flutninga fyrir júnímánuð. Alls fluttu 5284 einstaklingar lögheimili sitt í mánuðinum sem eru átta prósentum fleiri en í júnímánuði síðasta árs.

Í maí fluttu 4965 einstaklingar lögheimili sitt og voru það því 6,2 prósentum fleiri sem fluttu lögheimili nú í júní.

Sundurgreint eftir landshlutum voru flutningar flestir á höfuðborgarsvæðinu. Þar fluttust 3003 af 3382 einstaklingum innan höfuðborgarsvæðisins.

Ekki hafa fleiri skráð lögheimilisflutning innan eins mánaðar síðan í ágúst árið 2025 þegar 5667 gerðu slíkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×