Innlent

Ástarsvik sí­fellt al­gengari og rann­sókn lokið í Eyjum

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Sakleysislegu daðri og samskiptum inn á einkamál.is lauk á því að maður á áttræðisaldri missti aleigu sína til svikara og með útkalli sérsveitar á heimili hans.

Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um svikamál og sérstaklega svokölluð ástarsvik sem hafa verið algeng undanfarið. 

Þá segjum við frá lokum rannsóknar í Vestmannaeyjum á atviki sem upp kom á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum. 

Einnig verður rætt við forstjóra Emblu Medical sem var að skila góðu ársuppgjöri, meðal annars vegna endurgreiðslum frá bandarískum yfirvöldum vegna tollastríðsins.

Í sportinu verður farið yfir úrslitin í Bestu deildinni frá því í gær hitað upp fyrir Evrópuleik Víkings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×