Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Birgir Olgeirsson skrifar 21. júlí 2026 18:30 Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu og er stærsti flokkurinn í könnunum fyrirtækisins í fyrsta sinn í hálft annað ár. Samfylkingin mælist skammt á eftir með 24,4 prósent.
Munurinn á flokkunum er aðeins 0,6 prósentustig og innan vikmarka könnunarinnar. Vikmörkin eru 2,7 prósentustig hjá báðum flokkum. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um 2,3 prósentustig frá könnun Maskínu í júní. Flokkurinn hefur verið á mikilli siglingu undanfarna mánuði og fylgi hans aukist úr 13,5 prósentum í janúar í 25 prósent nú. Fylgi Samfylkingarinnar minnkar hins vegar um 0,8 prósentustig milli mánaða. Flokkurinn mældist með tæplega 32 prósenta fylgi síðasta haust en er nú kominn niður í 24,4 prósent. Framsókn tapar en Flokkur fólksins bætir við sig Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn með 13,4 prósent en flokkurinn var með rúmlega 22 prósent í janúar þegar fylgi Sjálfstæðisflokksins var hvað minnst. Viðreisn kemur á hæla Miðflokksins með 12,7 prósenta. Framsóknarflokkurinn tapar 1,9 prósentustigum milli mánaða og mælist nú með 6,6 prósent. Flokkur fólksins bætir aftur á móti við sig 1,8 prósentustigum og mælist með 5,9 prósent. Vinstri græn mælast með 4,9 prósent, Sósíalistaflokkurinn með fjögur prósent og Píratar með 3,1 prósent. Þeir þrír flokkar eru því undir fimm prósenta þröskuldinum fyrir úthlutun jöfnunarsæta. Ríkisstjórnin með 43 prósent Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja, Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins, mælist 43 prósent. Það er 1,3 prósentustigum meira en í júní en 7,4 stigum minna en flokkarnir fengu samanlagt í kosningunum 2024. Könnunin fór fram dagana 26. júní til 8. júlí. Alls tóku 963 svarendur afstöðu til flokka. Uppfært: Áður sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði mælst stærstur í fyrsta sinn frá kosningum í könnun hjá Maskínu. Eins og sjá má af grafinu mældist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í einni mælinu í mars 2025.
Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Vinstri græn Píratar Sósíalistaflokkurinn Flokkur fólksins Skoðanakannanir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira