Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller og Rúna Hauksdóttir skrifa 23. júlí 2026 13:31 Ólögleg sala lyfja, sérstaklega í gegnum netið, virðist sífellt aukast og haldast í hendur við mikla og vaxandi eftirspurn. Henni er svarað af óprúttnum aðilum sem svífast einskis, en ljóst er að framleiðsla ólöglegra lyfja er vaxandi vandamál víða um heim. Nýverið gerði tollgæslan upptæk ólögleg peptíð. Í stórum hluta sýnishornanna reyndist við efnagreiningu ekki unnt að staðfesta þau virku lyfjaefni sem sagt var að varan innihéldi. Hins vegar kom í ljós að mikil óhreinindi voru í sýnishornunum, en slíkt er algengt þegar framleiðslan á sér stað við slæm skilyrði. Notkun á slíkum lyfjum getur haft í för með sér margvísleg heilsufarsleg vandamál, sérstaklega þegar um er að ræða efni sem sprautað er inn í líkamann. Þetta dæmi staðfestir að þau sem kaupa lyf annars staðar en hjá löglegri lyfsölu geta engan veginn verið viss um að varan innihaldi það efni sem umbúðirnar segja til um. Virka efnið getur verið í öðrum styrk en gefið er upp, það hreinlega vantað, eða lyfið innihaldið einhver allt önnur efni í skaðlegu magni. Sú var raunin í Bretlandi síðastliðið haust þegar kona keypti á snyrtistofu það sem hún hélt að væri viðurkennt þyngdarstjórnunarlyf frá löglegum lyfjaframleiðanda. Lyfjapenninn reyndist hins vegar innihalda insúlín og lést konan eftir að hafa sprautað sig með efninu. Lyf meðhöndluð við óboðlegar aðstæður Martin Burman er formaður samevrópsks vinnuhóps sem vaktar ógnir í framleiðslu og dreifingu lyfja (WGEO) og flutti erindi á afmælismálþingi Lyfjastofnunar í nóvember sl. Þau lyf sem helst er verið að falsa eru ávana- og fíknilyf, eftirlitsskyld efni, krabbameinslyf, stinningarlyf, og síðast en ekki síst þyngdarstjórnunarlyf. Allt lyf sem eru dýr eða mjög eftirsótt, nema hvoru tveggja sé. Hann sagði á málþinginu frá aðgerð í Svíþjóð á seinni hluta síðasta árs þegar upprætt hefði verið gríðarlega umfangsmikil framleiðsla lyfja og þar var líklega verið að selja fyrir milljónir evra. Efnin voru keypt frá Kína og síðan voru stungulyfjaglös útbúin í yfirgefnu húsi í skógi við óboðlegar aðstæður. Um svipað leyti fréttist af ólöglegri lyfjaverksmiðju í Bretlandi þar sem fram fór umfangsmikil framleiðsla sykursýki- og þyngdarstjórnunarlyfja. Eftirlitssvið bresku lyfjastofnunarinnar (MHRA) vann þá með lögreglu að því að gera upptækan stóran lager slíkra lyfja í verksmiðjunni, og einnig enn stærri lager af ýmis konar hráefni og tugþúsundum tómra lyfjapenna. Lögleg lyf seld með ólögmætum hætti ber líka að varast Vitað er til þess að lyf sem aflað hefur verið með lögmætum hætti hafi verið seld áfram til þriðja aðila. Boðin eru til sölu eftirsótt lyf á lægra verði en apóteksverðið almennt er, eða lyf sem sæta takmörkunum af ýmsu tagi hvað varðar ávísun. En jafnvel lyf fengin úr apóteki sem síðan eru seld ólöglega geta verið varhugaverð. Lyf eru viðkvæmur varningur og miklu máli skiptir að meðferð þeirra og umsýsla sé rétt. T.d. er misjafnt við hvaða hita- og rakastig á að geyma hin ýmsu lyf og getur óvarleg umsýsla lyfja valdið umbreytingu á efnasamsetningu þeirra sem hugsanlega getur haft skaðlegar afleiðingar. Sér í lagi þegar um er að ræða lyf sem eru á sprautuformi og komast þannig framhjá náttúrulegum vörnum líkamans í meltingarvegi eða húð. Ávísunarskyld lyf eru þar að auki eingöngu ætluð þeim sem ávísað var og geta verið varasöm öðrum. Lögleg lyfjakaup á netinu Lyfjastofnanir í Evrópu hafa með sér margvíslega samvinnu. Eitt samvinnuverkefnið er hið sameiginlega evrópska kennimerki netverslana með lyf. Ferlið er þannig að hver lyfjastofnun veitir leyfi fyrir löglegri lyfsölu í gegnum netið, að tilteknum skilyrðum uppfylltum. Á vef Lyfjastofnunar er þannig að finna lista yfir apótek sem hafa heimild til lyfsölu á netinu, og hvernig skal sannreyna að treysta megi netverslun með lyf. Sameiginlega evrópska kennimerkið er lykilatriði hér. Þar má sjá má fána viðkomandi þjóðar og sé smellt á merkið opnast listi yfir þau apótek landsins sem hafa heimild til lyfsölu í gegnum netið. Sé kennimerkið ekki til staðar á vef sem segist selja lyf, er ekki um löglega lyfsölu að ræða, og rétt að undirstrika að sala lyfja á samfélagsmiðlum er með öllu óheimil. Ströng löggjöf og vitund almennings nauðsynleg Það er rík ástæða fyrir strangri löggjöf um lyfjaframleiðslu, meðhöndlun og sölu lyfja. Lyf eru ekki eins og hver annar varningur sem versla má frjálslega með á sölutorgum heimsins. Þau kunna að innihalda efni sem með rangri notkun geta valdið alvarlegu heilsutjóni. Að ekki sé talað um lyf unnin utan hinna löglegu ferla, þau gætu innihaldið lífshættuleg efni. Því er framleiðsla og sala lyfja einungis heimil undir ströngu eftirliti lyfjayfirvalda í hverju landi. Fölsuð lyf eru alvarleg heilbrigðisógn. Öflugt eftirlit til að sporna gegn því að fölsuð lyf komist á markað skiptir miklu máli en eins þarf almenningur að vera upplýstur og meðvitaður um áhættuna sem fylgir því að nota lyf ef uppruni þeirra er óljós eða óþekktur. Fólk á aðeins að nota lyf sem því hefur verið ávísað af heilbrigðisstarfsmanni og leyst út eftir öruggum leiðum. Að nota lyf keypt af öðrum en þeim sem hafa heimild til lyfsölu, er háskalegur leikur sem getur valdið alvarlegu heilsutjóni eins og dæmin sanna. Alma D. Möller heilbrigðisráðherra Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma D. Möller Lyf Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun