Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Agnar Már Másson skrifar 23. júlí 2026 12:42 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm Fjármálaráðherra segir það góðar fréttir að innlend verðbólga sé á undanhaldi, þótt það séu slæmar fréttir að verðbólga aukist. Forseti ASÍ segir það svo gott sem klárt mál að verðbólguviðmið kjarasamninga náist ekki í haust. Ráðherra segir að þrátt fyrir að verðbólguviðmiðið muni líklegast ekki standast hafi kaupmáttur haldist við.
Ársverðbólga jókst um 0,1 prósentustig í júlí og stendur nú í 5,3 prósentum. Að óbreyttu verður því verðbólga yfir 4,7 prósenta viðmiði kjarasamninga í september og þá heimilt að endurskoða þá. Finnbjörn Hermansson, forseti Alþýðusambandsins, segir verðbólguaukninguna viðbúna en engu að síður vonbrigði. „Þetta þýðir að það er eiginlega orðið klárt að verðbólgumarkmiðin nást ekki sem voru viðmið kjarasamninga,“ segir Finnbjörn hjá ASÍ. Finnbjörn Hermannsson er forseti ASÍ.Vísir/Arnar Mæling Hagstofunnar birtist í dag og er sú næstsíðasta fyrir skoðunarpunkt kjarasamninganna. Þrátt fyrir að sumarútsölur á fatnaði og verðlækkanir á orkugjöfum hafi haft lækkandi áhrif á verðbólgu, hækkaði kostnaður vegna búsetu um 0,6 prósentustig og flugfargjöld um 15 prósentustig – sem hafði tilheyrandi áhrif á vísitölu neysluverðs. Finnbjörn segir að til að ná niður verðbólgu verði fyrirtæki að láta af verðhækkunum. „Það verða allir að taka þátt í því að reyna að ná niður verðbólgu. Það er ekki bara verkefni verkalýðshreyfingarinnar og almennings í landinu. Fyrirtækin í landinu verða náttúrulega að horfa í eigin barm og þau verða að taka á líka,“ segir Finnbjörn hjá ASÍ. Innlend verðbólga á undanhaldi Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að góðu fréttirnar séu þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi. Hann vill meina að til þess að ná niður verðbólgu þurfi að draga úr innlendum verðbólguþrýstingi. „Það sem við sjáum er að drífa verðbólguna áfram núna er það sama og hefur verið að gera það í undanförnum mælingum, þ.e.a.s. olíuverð og afleiddir þættir af því. Tölurnar sýna þó þrátt fyrir allt, eins og í síðasta mánuði, að undirliggjandi innlend verðbólga er á undanhaldi og það eru í sjálfu sér góðar fréttir þó að þetta séu auðvitað ekki góðar fréttir,“ segir Daði Már fjármálaráðherra. Hvað þarf að gera til þess að ná verðbólgunni niður? „Ég held að það sem verið er að gera sé auðvitað það sem þarf að gera þar,“ svarar Daði og heldur áfram: „Ríkið þarf áfram að styðja Seðlabankann í þeirri vegferð að draga úr innlendum verðbólguþrýstingi og það gerum við og munum gera í haust með hallalausum fjárlögum.“ Daði Már hefur áður talað fyrir því að minnka vægi verðtryggingarinnar í íslensku samfélagi. Er sú vinna hafin? „Já, sú vinna er komin af stað. Hún er auðvitað gegnsýrir allt íslenskt samfélag, þannig að þetta þarf að gerast í einhverjum skrefum en fyrstu skrefin verða stigin í haust.“ Hvað kjarasamningana varðar segir Daði að forsenduákvæðið í kjarasamningunum hafi verið sett inn á sínum tíma til að tryggja að hóflegar launahækkanir myndu ekki leiða til rýrnunar á kaupmætti; að laun myndu hækka minna heldur en verðlag. „Nú hefur þróunin frá því að þessir samningar voru gerðir verið sú að laun hafa hækkað töluvert umfram verðlag, þannig að hér hefur verið kaupmáttaraukning,“ segir Daði. „Þannig að þrátt fyrir að það sé auðvitað alvarlegt mál að þetta forsenduákvæði haldi ekki, þá hljóta aðilar að skoða hið raunverulega undirliggjandi loforð sem var um það að viðhalda kaupmætti – og það hefur staðið. Þannig að ég geri ráð fyrir því að bæði Samtök atvinnulífsins og aðrir aðilar vinnumarkaðarins, verkalýðshreyfingin, muni nálgast umræðuna í kringum þetta í haust á þeirri forsendu.“
Efnahagsmál Verðlag Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Erlent Fleiri fréttir Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra Sjá meira