Æfir íslenskuna daglega í klefanum Valur Páll Eiríksson skrifar 25. júlí 2026 08:02 Nacho Heras hefur leikið lengi hér á landi. Vísir/VPE Spánverjinn Nacho Heras fagnaði heimsmeistaratitli á sunnudag og sigri í Bestu deildinni á mánudag. Hann óraði ekki fyrir því þegar hann kom hingað til lands árið 2017 að hann yrði enn hér í dag.
Nacho Heras hefur leikið fótbolta hér á landi í tæpan áratug en hann gat glaðst með fjölskyldunni á sunnudaginn var, þegar heimaþjóð hans, Spánn varð heimsmeistari í annað sinn. „Þetta var sérstakt. Við fögnuðum Evróputitlinum fyrir tveimur árum fjölskyldan, og hún var aftur í heimsókn hjá mér núna. Við unnum svo gleðin var mikil. Þetta var sérstakur dagur, það er alveg klárt,“ segir Nacho í Sportpakkanum á Sýn. Hélstu partí á sunnudaginn? „Í rauninni ekki því við áttum leik daginn eftir við ÍA í Bestu deildinni. Svo ég gat ekki fagnað almennilega. Ég var í raun bara að borða pasta á meðan leiknum stóð. Við fögnuðum en ekkert brjálæðislega,“ segir Nacho. Gengið vonum framar Eins og Nacho nefnir átti hann leik með Keflavík daginn eftir. Segja má að Keflvíkingum hafi gengið vonum framar í sumar, liðið situr í fimmta sæti eftir að hafa verið spáð botnsæti deildarinnar í öllum spám. „Mér finnst við traustir og við erum með góðan leikmannahóp. Með smá meiri heppni í ákveðnum leikjum gætum við verið með fleiri stig. Það er eðlilegt að fólk hafi spáð okkur slæmum árangri, við erum vanir því í Bestu deildinni,“ „Við höfum staðið okkur vel en þetta er ekki búið, sérstaklega þar sem á eftir að skipta deildinni upp. Okkar markmið er að vera í efri hlutanum,“ segir Nacho. Verið á Íslandi frá 2017 Nacho kom hingað til lands fyrir tæpum áratug að spila með Víkingi Ólafsvík. En bjóst hann við því þegar hann kom hingað árið 2017 að hann yrði enn hér í dag? „Nei, í rauninni ekki. Það er ástæðan fyrir því að ég tala ekki fullkomna íslensku. Fyrstu árin einblíndi ég bara á að bæta enskuna því ég bjóst ekki við því að vera hérna svona lengi,“ „En fjölskyldan mín er hér. Dóttir mín er spænsk en líka íslensk því hún fæddist hér. Lífið okkar er hérna og við viljum vera hér í nokkur ár í viðbót. Ég veit ekki hvort það verður til æviloka, vegna þess að veðrið er erfitt viðureignar eins og þú veist,“ segir Nacho og hlær. „En við höfum ávallt verið mjög hamingjusöm hér,“ segir Nacho sem var þá beðinn um að sýna íslensku kunnáttuna. „Ég tala smá íslensku. Ég er alltaf að læra, tala mikið í klefanum alla daga,“ sagði Nacho á reiprennandi íslensku. Lengri útgáfu af viðtali við Nacho má sjá í spilaranum að neðan. Klippa: Nacho ræðir HM-titil, áratug á Íslandi og Sunny Kef
Spánn HM 2026 í fótbolta Keflavík ÍF Besta deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira