Viðskipti erlent

Apple aftur verð­mætasta fyrir­tæki heims

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Tim Cook er forstjóri Apple og Jensen Huang forstjóri Nvidia.
Tim Cook er forstjóri Apple og Jensen Huang forstjóri Nvidia. epa

Apple er aftur orðið verðmætasta fyrirtæki heims, eftir að hlutabréf í Nvidia lækkuðu um fimm prósent í gær. Apple er nú metið á um 4,9 billjónir dala en Nvidia á um 4,8 billjónir.

Fjárfestar eru sagðir uggandi vegna þróunar mála í gervigreindariðnaðinum en tæknin hefur enn ekki skilað teljandi hagnaði þrátt fyrir gríðarleg útgjöld og fjárfestingar.

Margir segja um bólu að ræða og segja það meðal annars vegna þess að sama fjármagnið sé að flakka á milli bóka Nvidia og stóru gervigreindarfyrirtækjanna og hækka virði þeirra, án þess að nokkuð sé þar að baki.

Þá hafa áhyggjur aukist af samkeppni frá Kína, sem hefur tekist að smíða háþróuð módel með mun minni tilkostnaði en fyrirtækin vestanhafs.

Nvidia framleiðir örflögurnar sem knýja gervigreindina og virði fyrirtækisins hefur tífaldast frá því að OpenAI gaf út fyrstu útgáfu ChatGPT. 

Apple hefur hins vegar farið varlega á gervigreindarvegferðinni og notast við þjónustur Google í stað þess að þróa sína eigin gervigreindartækni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×