Frumsýning: Íslensk stikla fyrir Um tímann og vatnið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. júlí 2026 11:01 Amma og afi Andra Snæs, mikið jöklaáhugafólk, eru í mikilvægu hlutverki í myndinni. Brúðkaupsferð þeirra fyrir margt löngu var upp á jökul. Eftir að hafa verið lofuð eftir sýningar í kvikmyndahúsum í Bretlandi og Bandaríkjunum er heimildarmyndin Um tímann og vatnið á leið í bíó hér heima. Myndin verður frumsýnd í Háskólabíói 27. ágúst í návist forseta Íslands.
Myndin var heimsfrumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni, hefur verið sýnd á yfir fimmtíu kvikmyndahátíðum um allan heim og verið sýnd í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum og Bretlandi. Gagnrýnendur hafa lofað myndina í hástert og meðal annars kallað hana „fallegustu heimildarmynd ársins“, „stórkostlega“ og „einstakt stórvirki“. Stikluna má sjá að neðan. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er að eltast við eitthvað óáþreifanlegt. Þegar jöklarnir bráðna og minningar glatast, þegar afar og ömmur eldast og deyja, tekur hann saman tímahylki til að varðveita það sem hann elskar mest - og sendir framtíðinni. Andri Snær notar ljósmynda- og kvikmyndasafn afa síns, eigin upptökur og gamlar þjóðsögur til að vefa mynd sem er í senn fjölskyldusaga og saga um náttúru á hverfandi hveli. Andri Snær sagðist í viðtali við Vísi í janúar hafa sett það í samning myndarinnar að gera íslenska útgáfu af henni. Hann er sjálfur þulur myndarinnar og gat ekki hugsað sér annað en að hún yrði sýnd á íslensku í heimalandinu. Leikstjórinn Sara Dosa er mikill Íslandsáhugamaður, gerði heimildarmyndina The Seer and the Unseen árið 2019 sem fjallaði um íslenskt huldufólk og nýtti síðan íslenskt myndefni af eldgosum í heimildarmyndinni Fire of Love sem kom út 2022. Sú síðarnefnda sló rækilega í gegn og var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Andri Snær í útivistargallanum. Frumsýningin hér heima verður fimmtudagskvöldið 27. ágúst í Háskólabíói og er miðasala hafin hér. Sara leikstjóri og Andri Snær munu sitja fyrir svörum að sýningu lokinni. Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson flytja tónlist og sérstakur heiðursgestur kvöldsins verður Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. IndieWire, Rotten Tomatoes, Next Best Picture, The Film Stage og kvikmyndagagnrýnandinn Zachary Lee hafa lýst myndinni sem einni þeirri bestu þetta árið.
Jöklar á Íslandi Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Fyrsta stiklan fyrir heimildarmyndina Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið frumsýnd. Andri Snær hlýtur í lok vikunnar WWF-Póllandsverðlaunin í Varsjá en þau eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða fyrir náttúruna. 5. maí 2026 17:14 Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Heimildarmyndin Time and Water, sem byggir á bókinni Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason, verður heimsfrumsýnd á Sundance-hátíðinni í dag. Kvikmyndagerðarmennirnir fengur óskertan aðgang að myndefni sem fjölskylda Andri hafði tekið frá 1955 til samtímans og fléttu það saman við íslenska náttúru. 27. janúar 2026 10:55 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Fleiri fréttir „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Skaut sig óvart í fótinn Iceguys reyndu við Hasselhoff Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Biðjast afsökunar og kippa umdeildum þáttum úr birtingu Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Sjá meira
Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Fyrsta stiklan fyrir heimildarmyndina Um tímann og vatnið, sem byggir á samnefndri bók Andra Snæs Magnasonar, hefur verið frumsýnd. Andri Snær hlýtur í lok vikunnar WWF-Póllandsverðlaunin í Varsjá en þau eru veitt aðalpersónu kvikmyndar sem hvetur aðra til aðgerða fyrir náttúruna. 5. maí 2026 17:14
Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Heimildarmyndin Time and Water, sem byggir á bókinni Um tímann og vatnið eftir Andra Snæ Magnason, verður heimsfrumsýnd á Sundance-hátíðinni í dag. Kvikmyndagerðarmennirnir fengur óskertan aðgang að myndefni sem fjölskylda Andri hafði tekið frá 1955 til samtímans og fléttu það saman við íslenska náttúru. 27. janúar 2026 10:55