Innlent

Stór­slysa­leg fyrsta upp­lifun af landinu

Jakob Bjarnar skrifar
Þrjár kynslóðir loksins sameinaðar á ný; April, dóttir hennar Imani og móðir hennar Taffie. En það gekk ekki stórslysalaust að koma þeim til landsins.
Þrjár kynslóðir loksins sameinaðar á ný; April, dóttir hennar Imani og móðir hennar Taffie. En það gekk ekki stórslysalaust að koma þeim til landsins. aðsend

Móðir April Dobbins og dóttir eru meðal þeirra sem lentu í miklum hremmingum á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins nú fyrir helgi. April segir móður sína, sem er á áttræðisaldri, hafa verið algjörlega búna eftir að hafa staðið í tveggja tíma röð í Leifsstöð.

„Hún hefur aldrei farið frá Bandaríkjunum áður. Ég hef búið hér í nokkur ár og hef verið að leggja að henni að sækja mig og landið heim. Hún lét loksins verða af því,“ segir April.

April segir að sem betur fer hafi dóttir hennar Imani, sem er við nám í Bandaríkjunum, verið með Taffie móður hennar í för. Hún veit ekki hvernig þetta hefði farið öðrum kosti.

„Dóttir mín er 22 ára gömul en þær voru báðar í Alabama. Þær flugu til Nashville og þaðan fóru þær í vél frá Icelandair og héldu til Íslands.“

Örtröðin eins og á tónleikum

Vísir hefur fjallað ítarlega um örtröðina sem myndaðist á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi en þar myndaðist til að mynda mikil teppa við töskufæribandi:

April á íslenskan eiginmann og hann var að fara til Mallorka þannig að það hentaði vel að þau hjónin færu saman út á Leifsstöð til að sækja þær Imani og Taffie. Biðin ætlaði engan enda að taka.

„Þetta tók svakalega langan tíma. Ég hef aldrei vitað annað eins. Það var gríðarleg örtröð í móttökusalnum. Þetta var eins og á tónleikum og fólk var afar ráðvillt. Þarna voru íslenskir ökumenn sem voru að hringja í ofboði; ég heyrði þá tala um að þetta væri stórslys. Ég hef aldrei séð nokkuð í líkingu við þetta.“

Er að jafna sig eftir þessa erfiðu upplifun

Eftir að þær Imani og Taffie komust loks í gegnum vegabréfseftirlitið og út voru þær gersamlega búnar á því að sögn April. Hún segir varla hægt að leggja svona nokkuð á gamla konu.

„En hún er baráttujaxl og jákvæð að upplagi. Ég hef farið með hana og sýnt henni staði sem gera Ísland algjörlega einstakt. 

April hefur farið um með móður sína og sýnt henni það helsta. Hún er að jafna sig eftir þessa reynslu.aðsend

Fólkið hér er líka einstaklega vingjarnlegt og hún er að ná sér,“ segir April sem lætur þessa hörmulegu reynslu af umferðaröngþveitinu í Leifsstöð ekki slá sig út af laginu. En hún telur að þau á Leifsstöð geti gert svo miklu miklu betur. Leiðinlegt sé að eiga heimsmet fyrir skipulagsslys af þessu tagi.

Vísir hefur sent fyrirspurn til Isavia þar sem meðal annars er grennslast fyrir um hvenær fólk getur vænst þess að hlutirnir á Keflavíkurflugvelli verði komnir í eðlilegt horf?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×