Handbolti

Besti handboltamaður heims fór í markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gidsel er hér kampakátur í markinu.
Gidsel er hér kampakátur í markinu. mynd/fuchse berlin

Undirbúningstímabil handboltaliða er nú í fullum gangi og einhverjir þjálfarar leyfa sér að sprella aðeins.

Þýska liðið Füchse Berlin spilaði þrjá æfingaleiki í síðustu viku og í lokaleiknum fór þjálfari liðsins, Nicolej Krickau, upp á áhugavert útspil.

Þá setti hann dönsku skyttuna og besta handboltamann heims, Mathias Gidsel, í markið í seinni hálfleik.

Leikurinn var vissulega gegn 4. deildarliði og fór 57-26. Hálfleikstölur voru 34-14.

Krickau var samt óánægður með markverðina í fyrri hálfleik og brá því á þetta ráð. Leikmenn virtust skemmta sér konunglega eins og sjá má að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×