Handboltamaður Íslandsmeistari í hástökki: „Maður veit aldrei hvað maður getur“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. júlí 2026 08:02 Handboltamaðurinn Kristófer Snær Þorgeirsson sló ekki slöku við í sumarfríinu og ákvað að byrja í nýrri íþrótt, hástökki. Það heppnaðist heldur betur vel og hann stóð uppi sem Íslandsmeistari um helgina.
Kristófer hafði aldrei prófað hástökk áður en hann ákvað að kíkja á æfingu hjá frjálsíþróttadeild Ármanns í byrjun sumars. Alla jafnan er Kristófer hornamaður í handbolta. Hann hefur verið í stóru hlutverki hjá liði Víkings undanfarin ár og verður hluti af liðinu sem vann sér inn sæti í úrvalsdeild karla í vetur. Þegar handboltinn fór í sumarfrí ákvað Kristófer að finna sér eitthvað meira að gera. „Það voru engar æfingar og mig langaði að gera eitthvað meira, prófa eitthvað nýtt. Ég sendi bara á þjálfarann hjá Ármanni og hann tók á móti mér, sá eitthvað í mér. Þannig að ég ákvað bara að bomba á það,“ sagði Kristófer í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöld og má sjá hér fyrir neðan. Kristófer segir hástökkið og hornamennsku í handboltanum fara vel saman. „Já ég hoppa hátt og hleyp, þetta passar mjög vel við handboltann, það vantar bara kastið og þá væri þetta nákvæmlega eins.“ Kristófer á verðlaunapallinum um helgina. Hann stefnir á að halda hástökksferlinum áfram samhliða handboltanum. „Ég ætla að reyna, ef ég hef tímann í það. Mæti kannski einu sinni í viku og keppi á mótum þegar ég get.“ Þá er ekki útilokað að hann reyni fyrir sér í einhverjum öðrum frjálsum íþróttum. „Kannski spretthlaupið, kannski langstökk. Ég á bara eftir að prófa þetta, maður veit aldrei hvað maður getur.“
Frjálsar íþróttir Handbolti Olís-deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sara Rún öflug í sigri KR Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Sjá meira