Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Sigurgeir Þorkelsson skrifar 28. júlí 2026 18:49 Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi, er hér klædd einkennislit Lyfju. Birgir Ísleifsson Festi hf. hefur birt afkomu sína á öðrum ársfjórðungi en félagið rekur meðal annars Krónuna, N1, Lyfju og Elko. Aukning var í vörusölu milli ára og hagnaður varð af rekstrinum upp á tæpa 1,3 milljarða. Hækkandi heimsmarkaðsverð olíu virðist hafa áhrif á rekstrarárið 2026 en afkomuspá EBITDA fyrir árið hefur verið lækkuð um 500 milljónir.
Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins námu rúmum 39 milljörðum króna og hafa hækkað um rúma 6,2 milljarða frá síðustu áramótum. Er það skýrt með aukinni fjárbindingu félagsins í vörubirgðum og viðskiptakröfum tengdum hækkandi eldsneytisverði á heimsmarkaði. „Sú mikla hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði sem hefur orðið mun hafa áhrif á afkomu N1 á seinni helmingi ársins,“ er haft eftir forstjóra Festis, Ástu S. Fjeldsted, í tilkynningu en eins og áður sagði hefur afkomuspá fyrir árið 2026 verið lækkuð um hálfan milljarð. Nokkur aukning í vörusölu Vörusala nam rúmum 46 milljörðum á öðrum ársfjórðungi, sem eru mánuðirnir apríl, maí og júní. Það er aukning upp á 6,4 prósent milli ára. EBITDA lækkaði um 0,8 prósent milli ára og nam 3,9 milljörðum. Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 11,5 milljörðum sem er aukning um 4,7 prósent milli ára. Handbært fé frá rekstri nam 287 milljónum króna og lækkar um 4,9 milljarða milli ára. Í tilkynningu frá félaginu er það skýrt með einskiptisáhrifum á rekstrartengdar eignir og skuldir. Eiginfjárhlutfall félagsins var 40,2 prósent og eigið fé var tæplega 47 milljarðar. Félagið greiddi á fjórðungnum arð að upphæð 2151 milljón til hluthafa. „Rekstur samstæðunnar gekk ágætlega á fjórðungnum, þó að framlegð af eldsneyti hafi verið undir áætlunum og fjöldi seldra eldsneytislítra dregist saman um 4,3%, einkum vegna minni sölu til stórnotenda. Góður gangur var í öðrum vöruflokkum þar sem sala og framlegð jukust milli ára. Afgreiðslufjöldi þvert á samstæðuna stóð nánast í stað milli ára en körfustærð stækkaði þar sem fjöldi seldra vara jókst um 3,7%,“ er áfram haft eftir Ástu í tilkynningunni. Þá er í tilkynningunni lýst yfir ánægju með viðtökur eftir endurbætur á verslun Krónunnar í Lindum en þrátt fyrir níu vikna lokun hafi aðsókn á fyrri helmingi árs aukist um 2,6 prósent milli ára. Fram undan hjá félaginu séu endurbætur á verslun Elko á Granda og opnun nýs apóteks Lyfju í Vallahverfi Hafnarfjarðar.
Festi Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira