Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar 29. júlí 2026 10:16 Í gær 28. júlí, birti Vísir grein eftir Jakob Bjarnar um að rithöfundar hefðu fengið óvenjulegt tilboð frá aðilum sem eru að þróa gervigreindar forrit til stuðnings við lestrarkennslu. Hildur Knútsdóttir sagði frá því að hún hefði verið beðin um að láta texta sinn af hendi endurgjaldslaust á meðan verkefnið væri í þróun. Greitt yrði fyrir hann síðar, ef til vill, þegar varan væri tilbúin. Fleiri barnabókahöfundar hafa fengið sams konar beiðni. Viðbrögðin hafa verið hörð og það er auðskilið. Frá því greinin birtist hafa nokkrir sent okkur í LESA línu og spurt hvort þetta séum við. Það er ekki rétt og mér finnst mikilvægt að taka af allan vafa. Hver einasta saga er skrifuð frá grunni Hjá LESA skrifum við allt okkar efni sjálf. Hver einasta saga er skrifuð frá grunni. Við notum ekki texta úr útgefnum bókum, hvorki með né án leyfis. Við erum með eigin ritstjórn sem hefur skrifað allar sögurnar í LESA. Nú eru þær orðnar 365 talsins, í þremur erfiðleikastigum. Sögurnar okkar eru ætlaðar sem stuðningur við lestrarkennslu og teljast ekki vera bókmenntir í þeim skilningi. Þær eru byggðar á lestrarfræði hvað varðar innlögn á orðum og hljóðum sem kennd eru í lestri samkvæmt forskrift Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Sögurnar byggja á okkar eigin hugmyndum, okkar eigin persónum og þeim söguheimi sem við höfum þróað fyrir LESA. Sama gildir um myndirnar. Á bak við þetta liggur mikil vinna og við höfum frá upphafi lagt áherslu á að skapa allt efnið sjálf. Við ætlum einvörðungu að þróa efni fyrir yngsta stig grunnskóla. Þar teljum við þörfina mesta og þar viljum við leggja okkar af mörkum. Höfundar eiga að fá greitt Þegar margir höfundar fá sömu beiðni er ekki lengur um að ræða eitt klaufalegt erindi. Þá er verið að leita kerfisbundið að efni annarra til að byggja vöru á. Það er ekki misskilningur á höfundarrétti. Ef viðskiptahugmynd gengur ekki upp nema með ókeypis aðgangi að höfundarréttarvörðu efni er eitthvað að hugmyndinni. Hildur orðaði þetta vel í viðtalinu og ég tek heilshugar undir það. Þetta snýst í grunninn ekki um gervigreind heldur um virðingu fyrir höfundarétti. Höfundar vinna vinnuna sína eins og allir aðrir og eiga að fá greitt fyrir hana. Það á líka við þegar varan sem nýtir verkin þeirra er enn í þróun – raunar sérstaklega þá. Það er ekki eðlilegt að höfundar taki áhættuna á þróun verkefnis án endurgjalds. Gervigreind mun án efa breyta miklu á næstu árum. Hún getur orðið öflugt verkfæri, einnig í lestrarkennslu. En hún breytir ekki þeirri einföldu staðreynd að einhver skapaði textann og á réttinn að honum. Við hjá LESA trúum því að hægt sé að byggja öflugt lestrarforrit fyrir börn án þess að ganga á rétt höfunda. Markmið okkar er að vekja áhuga barna á lestri sem allra fyrst. Barn sem verður lesandi snemma les meira, nýtur bóka betur og verður líklegra til að kaupa bækur síðar á lífsleiðinni. Þó okkar bækur séu ekki bókmenntir þá eru þær okkar sköpun og við erum því í sama liði og rithöfundar. Fyrsta útgáfa af LESA kemur út um miðjan ágúst. Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Revera og stofnandi Lesa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bókmenntir Gervigreind Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar