Horfðu á bílinn velta niður fjallið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. júlí 2026 16:57 Hér má sjá flak bílsins úr nokkurri fjarlægð ásamt þaktjaldi sem var ofan á bílnum. aðsend Fjölskylda á ferðalagi um Vestfirði reiknaði með því versta þegar hún horfði á bíl velta niður hlíðar Bolafjalls um þrjúleytið í dag. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum þegar það sá konu skríða út úr bílflakinu sem var í algjörri klessu. Ótrúlegt en satt er konan aðeins slösuð á handlegg. „
Við ætluðum að keyra upp fjallið og sáum að það voru fjórir bílar á leiðinni upp,“ segir Erika Björg Richardsdóttir. Hún var á flakki með móður sinni Ágústu og bróður sínum Jóni Steinari, kominn til Bolungarvíkur og stefndu upp fjallið þegar atvikið varð. „Þessi bíll var fremstur,“ segir Erika og Jón Steinar telur að bíllinn hafi líklega verið Duster eða Jimny-jepplingur og með einingu á þakinu. Þau geta ekki fullyrt hvað gerðist en telja líklegast að hjól hafi farið út af veginum og í framhaldinu hafi bíllinn fylgt í heild sinni. Þau sáu fyrst þaktjaldið falla og bílinn í kjölfarið velta niður fjallið, hring eftir hring. Skreið út úr flakinu Erika segir þau hafa hringt í lögregluna á meðan þau horfðu á bílveltuna sem tók nokkurn tíma enda fallið mikið. „Bíllinn rúllar í marga marga hringi áður en hann klessir á risastein og stoppar,“ segir Erika. Við tók stutt bið áður en þau sáu hreyfingu. Manneskja skreið út úr bílflakinu. „Við erum rosalega glöð að heyra að það var bara ein manneskja. Við vorum að vona að það væru ekki fleiri þarna inni,“ segir Erika. Viðbragðsaðilar hafi komið á svæðið eftir um tuttugu mínútur en litlu fyrr hefði kona sem var úti að skokka og á leið niður fjallið komist að konunni. „Það var svolítið erfitt að komast að henni,“ segir Jón Steinar en hlíðin er bæði brött og stórgrýtt. Hættu við ferðina Fjölskyldan hafði ætlað upp á Bolafjall eftir að hafa heyrt af vinsælum útsýnispalli á toppi fjallsins. Eftir að hafa orðið vitni að ósköpunum ákváðu þau að sleppa því að keyra upp á fjallið og nýta daginn í annað. „Við hættum við að fara upp eftir þetta.“ Myndin sem fylgir fréttinni er tekin úr nokkurri fjarlægð og aðeins augnablikum eftir slysið. Hún var tekin að ósk lögreglunnar og er meðal gagna málsins sem er til rannsóknar. „Maður hefur aldrei séð svona margar veltur. Það er kraftaverk að einhver hafi verið á lífi,“ segir Ágústa. „Við héldum að það væri ekki séns að lifa þetta af,“ bætir Jón Steinar við. „Við trúðum því ekki þegar við sáum hreyfingu í bílnum,“ segir Erika.
Samgönguslys Lögreglumál Bolungarvík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira