Viðskipti innlent

Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir sam­runa Brims og Lýsis

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Stjórn Brims samþykkti fyrr í sumar að kaupa öll hlutabréf í Lýsi á 20 milljarða króna.
Stjórn Brims samþykkti fyrr í sumar að kaupa öll hlutabréf í Lýsi á 20 milljarða króna.

Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína yfir kaup Brims hf. á Lýsi hf. en í ákvörðun stofnunarinnar segir að samrunin virðist ekki hafa í för með sér skaðleg útilokunaráhrif fyrir keppinauta félaganna. Málinu hafi þannig verið lokað á fyrsta fasa án frekari rannsóknar.

Stjórn Brims samþykkti í júní síðastliðnum að kaupa öll hlutabréf í Lýsi á 20 milljarða króna. Um var að ræða töluverða verðlækkun frá því að greint var frá því í september í fyrra að Brim hefði gert kauptilboð í Lýsi fyrir 30 milljarða. Endursamið var um verðið, meðal annars með tilliti til vaxtaberandi skulda.

Samkvæmt ákvörðuninni segir að fyrirtækin hafi ekki talið samrunan munu hafa áhrif á samkeppni, enda væri markaðshlutdeild þeirra takmörkuð á viðkomandi mörkuðum og þau störfuðu að langmestu leyti á alþjóðlegum mörkuðum í samkeppni við stóra erlenda framleiðendur.

Þá færu viðskipti með hráefni að stórum hluta fram á opnum fiskmörkuðum, aðgangshindranir væru litlar og keppinautar hefðu greiðan aðgang að öðrum birgjum og kaupendum, bæði hér á landi og erlendis.

Samkeppniseftirlitið leitaði umsagna helstu keppinauta og viðskiptaaðila og gerðu viðkomandi ekki athugasemdir við samrunann. 

Stofnunin komst að þeirri niðurstöðu að samruninn væri fyrst og fremst lóðréttur og að virtri stöðu aðila á markaði, það er að segja takmarkaðri hlutdeild Brims í heildarafla og dreifðu framboði hráefnis, væri hvorki séð að samruni sameinaðs félags hefði getu til að útiloka keppinauta Lýsis frá hráefni né keppinauta Brims frá mikilvægum viðskiptavinum eða söluleiðum. Þá lægi fyrir að hluti viðkomandi hráefnis virtist þegar keyptur frá erlendum aðilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×