Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júlí 2026 10:34 Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Nýtt árangurstengt launakerfi Íslandsbanka kostaði bankann yfir sex hundruð milljónir. Hagnaður á öðrum ársfjórðungi nam rúmum sjö milljörðum.
Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,1 milljarði króna á öðrum ársfjórðungi og var arðsemi eigin fjárs 13,3 prósent á ársgrundvelli. Hreinar vaxtatekjur námu 15,3 milljörðum sem er 1,4 milljörðum krónum meira en á sama tímabili á síðasta ári. „Báðar þessar lykilstærðir voru hærri en á sama tímabili í fyrra, en lítillega undir væntingum greinenda fyrir fjórðunginn. Hreinar vaxtatekjur jukust um 10% samanborið við saman fjórðung í fyrra og vaxtamunur bankans var 3,4% á fjórðungnum,“ er haft eftir Jóni Guðna Ómarssyni, bankastjóra Íslandsbanka, í tilkynningu. Nýtt árangurstengt launakerfi var tekið upp í byrjun febrúar og kostaði það bankann 671 milljón króna. Þeir starfsmenn sem fengu bónus sem nam undir tíu prósent af laununum þeirra fengu greitt í reiðuféi en umfram það fengu starfsmennirnir afhent hlutabréf í Íslandsbanka. Viðskiptablaðið greindi fyrst frá. Markmið nýja launakerfisins var að stuðla að samræmi milli hagsmuna hluthafa, starfsmanna og viðskiptavina auk þess að styðja við sjálfbæran langtímaárangur. Endanleg ákvörðun um greiðslur verður tekin eftir að uppgjörstímabilinu lýkur en hún getur lækkað eða fellt niður bónusa vegna ófullnægjandi árangurs, brota á reglum eða versnandi fjárhagsstöðu bankans. Verða þeir greiddir út um áramót. Helstu atriði í fjárhagslegri afkomu fyrsta ársfjórðungs eru meðal annars eftirfarandi: Hreinar þóknanatekjur á 2F26 voru 3,3 milljarðar króna, samanborið við þóknanatekjur á 2F25 sem námu 3,6 milljörðum króna. Hrein fjármagnsgjöld voru 94 milljónir króna á 2F26, samanborið við fjármagnstekjur að fjárhæð 13 milljónir króna á 2F25. Stjórnunarkostnaður nam 8,1 milljarði króna á 2F26, en hann nam 7,3 milljörðum króna á 2F25. Kostnaðarhlutfall bankans var 43,1% á 2F26 samanborið við kostnaðarhlutfallið 41,0% á 2F25 Útlán til viðskiptavina jukust um 14,8 milljarða króna á 2F26 og námu 1.416 milljörðum króna í lok 2F26. Innlán frá viðskiptavinum jukust um 2,4% á 2F26 og námu 1.038 milljörðum króna í lok 2F26. Eigið fé nam 211,1 milljarði króna í lok 2F26, samanborið við 225,4 milljörðum króna í lok árs 2025. „Enn ríkir nokkur óvissa um yfirlýstan ásetning stjórnvalda um endurskoðun á skattlagningu fjármálafyrirtækja þar sem engar formlegar tillögur hafa enn verið lagðar fram. Skattlagning íslenskra fjármálafyrirtækja er nú þegar hærri en hjá sambærilegum fyrirtækjum á öðrum Norðurlöndum og frekari skattahækkanir gætu dregið úr samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins,“ segir Jón Guðni. Í júní sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra að hann boði enn bankaskatt þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja. Íslensku bankarnir búi þegar við meiri sértæka skattbyrði en bankar í nágrannalöndunum. Útfærslan liggi ekki fyrir.
Íslandsbanki Fjármálafyrirtæki Kjaramál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira