Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. júlí 2026 11:25 Benedikt Gíslason er bankastjóri Arion banki. Vísir/Vilhelm Arion banki hefur hagnast um rúmar 15 milljarða það sem af er ári sem er minna en á sama tíma á síðasta ári. Bankastjórinn segir bankann hafa náð öllum sínum fjárhagslegu markmiðum.
Hagnaður Arion banka var 8,1 milljarður króna á öðrum ársfjórðungi ársins samanborið við 9,8 milljarða króna á sama tímabili fyrir ári. Hreinar vaxta-, þóknana- og tryggingatekjur, án rekstrarkostnaðar tryggingafélagsins Varðar, jukust um 0,8 prósent milli ára. Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur hagnaðurinn, sem tilheyrir hluthöfum bankans, verið 15,4 milljarðar króna. Efnahagsreikningur bankans stækkaði um 5,3 prósent frá árslokum 2025, einkum útlán til viðskipta. Rekstur Varðar á öðrum ársfjórðungi skilaði hálfum milljarði króna og var samsett hlutfall 87,9 prósent en sé litið til síðustu sex mánaða var hagnaðurinn 400 milljónir króna og hækkar hann um tvö hundruð milljónir. „Afkoma annars ársfjórðungs var góð og náðum við öllum okkar fjárhagslegu markmiðum, þar með talið markmiði um samsetningu eiginfjár,“ er haft eftir Benedikt Gíslasyni, bankastjóra Arion banka, í tilkynningu. „Eins og síðustu ársfjórðunga var vöxtur í innlánum sem studdi við útlánavöxt, sérstaklega til fyrirtækja. Einnig var áfram mjög góður gangur í tryggingastarfsemi Varðar sem og sjóðastarfsemi Stefnis. Eigin- og lausafjárstaða er sem fyrr góð og styrkir okkur í áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn.“ Benedikt tekur fram að nýtt útibú Arion banka og Varðar í Reykjanesbæ hafi verið opnað í vor en það sé fyrsta nýja útibúið sem Arion banki opnar um árabil. Einnig hafi bankinn kynnt nýtt fríðindakerfi og verið valið besta bankaappið á Íslandi tíunda árið í röð. Blikastaðaland í Mosfellsbæ sé komið í söluferli en aðeins opið fjárfestum sem hafa reynslu af framkvæmdum sambærilegra verkefna.
Arion banki Fjármálafyrirtæki Tryggingar Mest lesið Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Sjá meira