Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Jakob Bjarnar skrifar 31. júlí 2026 12:03 Stefán Ólafsson prófessor furðar sig á því að bankastjórar hrósi sér af því að hafa náð fram öllum sínum fjárhagslegu markmiðum, eins og Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka geri, það sé ekki erfitt þegar Seðlabankinn hefur fært þeim á silfurfati hávaxtaumhverfi. vísir/vilhelm Doktor Stefán Ólafsson, sem starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu, gefur ekki mikið fyrir myljandi hagnað bankanna. Hann segir hagnaðinn koma fyrirhafnarlaust upp í hendurnar á bankamönnum sem láta sér ekki þetta happ úr hendi sleppa og herða enn róðurinn gagnvart þeim sem minnst eiga.
Stefán birtir athugasemd á Facebook-síðu sinni undir fremur háðskri fyrirsögn: „Hetjurnar í bönkunum!“ Þar leggur hann út af frétt Vísis sem greinir frá því að Arion banki hafi hagnast um rúmar 15 milljarða það sem af er ári sem er minna en á sama tíma á síðasta ári. Stefán vitnar í Benedikt Gíslason, bankastjóra Arion banka sem segir bankann hafa náð öllum sínum fjárhagslegu markmiðum. „Það er nú ekki erfitt í hávaxtaumhverfinu sem Seðlabankinn færir þeim. Hagnaðurinn fer í hæstu hæðir án þess að bankamennirnir hreyfi hönd.“ Stefán segir að bankamenn hafi þrátt fyrir þetta ekki setið aðgerðalausir í gósentíð hávaxtastefnunnar, heldur aukið vaxtamuninn á innlánum og útlánum sem eykur hagnað bankanna enn frekar. „Þeir hafa einnig hækkað vexti á íbúðalánum á þessu ári með því að setja sérstakt álag á þá sem eru með veðsetningarhlutfall umfram 50%. Þeir sem fá það álag, ofan á sögulega háa vexti umfram verðbólgu (raunvexti), eru fólkið sem þarf að skuldsetja sig meira á dýrum íbúðamarkaði. En það er fólkið sem á minni eignir fyrir og hefur lægri tekjur. Það fólk er pínt enn frekar með hinu nýja álagi sem bankarnir tóku upp eftir vaxtadóminn á síðasta ári.“ Stefán segir ekki erfitt að vera bankastjóri í slíku umhverfi og svo fái bankastjórar bónusa fyrir þetta vegna „góðrar frammistöðu“.
Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Arion banki Kjaramál Seðlabankinn Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira