Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Birgir Olgeirsson skrifar 31. júlí 2026 12:38 Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir aðgerðir við Dalsbú ganga vel. Á bilinu fimm til sjö hundruð minkar hafa verið aflífaðir, ábendingum hefur fækkað og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð. Lýður Rannsókn lögreglu á innbrotinu í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal stendur enn yfir. Ummerki benda til þess að fleiri en einn kunni að hafa verið að verki en það hefur ekki verið staðfest. Á sama tíma hefur ástandið í dalnum róast og ekkert tilfelli verið staðfest í byggð.
Lögregla hefur farið yfir myndefni og tekið vitnaskýrslur vegna málsins. Enginn hefur þó verið yfirheyrður sem grunaður er um verknaðinn. Ekki liggur fyrir hvernig farið var inn í búið og engin ummerki hafa fundist sem varpa ljósi á það. Lögregla biðlar áfram til fólks að athuga hvort það eigi myndefni sem gæti nýst við rannsóknina. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var allt með eðlilegum hætti í búinu um miðnætti aðfaranótt miðvikudags. Tilkynning um að mikill fjöldi minka hefði komist úr búrum sínum barst síðan skömmu eftir klukkan sjö um morguninn. Óvíst hversu margir komust út fyrir girðinguna Á milli tíu og tólf þúsund minkar voru í Dalsbúi þegar atvikið varð. Dalsbú er síðasta starfandi minkabú landsins. Talið hefur verið að þúsundir dýra hafi komist úr búrum sínum. Ekki liggur þó fyrir hversu mörg þau voru eða hversu margir minkar komust út fyrir ytri öryggisgirðingu búsins. Veiðimenn, sérþjálfaðir hundar og starfsfólk á vegum Mosfellsbæjar hafa undanfarna daga unnið að því að handsama eða aflífa dýrin. Gildrum hefur jafnframt verið komið fyrir í nágrenni búsins og neðar í dalnum. Ástandið að róast Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, segir að aðgerðunum miði vel. „Nóttin var svona frekar bara tíðindalaus og ástandið að róast bara heilmikið.“ Sárafáar ábendingar bárust Mosfellsbæ í nótt. Veiðimenn sem koma að aðgerðunum eru bjartsýnir eftir árangur síðustu daga og er áherslan nú lögð á nánasta umhverfi búsins og efsta hluta dalsins. Ábending barst um mink á golfvellinum á Korpu en Hilmar segir að í ljós hafi komið að þar hafi verið villtur minkur sem ekki kom frá búinu. Ekki er vitað hversu langt minkarnir frá Dalsbúi kunna að hafa farið. Hilmar hefur ekki heildartölu yfir þann fjölda sem náðst hefur en segir að hundruð dýra hafi verið aflífuð. „Samkvæmt mínum upplýsingum er búið að aflífa svona á bilinu 500 til 700 dýr í kringum búið, bæði innan sem utan girðingar.“ Ekki liggur fyrir hversu margir minkar hafa verið handsamaðir lifandi. Hilmar segir að viðbragðsaðilar reyni það áður en gripið er til annarra úrræða. „Það er alltaf fyrsti kostur að ná þeim á lífi. Við erum bæði með háfa og hunda og svo auðvitað byssur ef þess þarf en byrjum á mannúðlegum aðgerðum.“ Jákvæð teikn í gildrunum Nú er lögð áhersla á að fylgjast með gildrum í kringum búið og kanna hvort minkar hafi komist neðar í Mosfellsdal. „Það er lítið sem ekkert sem kemur í þær og ekkert neðar í dalnum, þannig það eru jákvæð teikn á lofti.“ Aðgerðunum er þó ekki lokið og Mosfellsbær heldur áfram að taka við ábendingum frá íbúum. „Áfram bara óskum við eftir ábendingum frá íbúum ef þeir verða varir við mink og við verðum bara á vaktinni alla helgina. Minkurinn fer ekkert í neitt helgarfrí frekar en við.“
Minkum sleppt í Mosfellsdal Mosfellsbær Lögreglumál Innbrot í kjúklinga-, svína- og minkabú Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira