„Ég er skrímsli“ Eiður Þór Árnason skrifar 1. ágúst 2026 09:47 Ming Ting Mancel var dæmd fyrir að hafa banað dóttur sinni á Edition-hótelinu síðasta sumar. Vísir/vilhelm „Ég er skrímsli.“ Þetta er Ming Ting Mancel sögð hafa sagt við fyrstu skýrslutöku lögreglu þann 14. júní 2025 eftir að eiginmaður hennar og dóttir fundust látin á hótelherbergi þeirra á Reykjavík Edition-hótelinu um morguninn. Skýrslan var tekin á Landspítalanum þar sem hún lá með lífshættulegt stungusár á bringunni. Þegar lögregla kom inn á hótelherbergið sat Mancel með sýnilegt sár á bringunni og sagði „ég drap tvær manneskjur“ á ensku. Þetta heyrist á upptöku úr búkmyndavélum lögregluþjóns sem í framhaldinu spyr hana hvort hún hafi „drepið tvær manneskjur“. „Yeee,“ á Mancel þá að hafa svarað hvíslandi. Starfsmaður hótelsins bar vitni um að hún hefði áður hringt í móttökuna, beðið um lögreglu og sjúkralið og ítrekað endurtekið orðin „tvær manneskjur“ á ensku. Í frumskýrslu lögreglu kemur fram að á gólfinu hafi legið karlmaður sem var orðinn kaldur viðkomu og búið að breiða lak yfir líkama hans. Í rúminu lá kvenmaður sem var orðin föl og leit út fyrir að vera látin. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Ming Ting Mancel í tólf ára fangelsi fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að verða 29 ára gamalli dóttur sinni að bana á hótelherberginu. Hún hyggst áfrýja dómnum. Dómur héraðsdóms var birtur í gær. Mancel neitaði því síðar að hafa orðið fjölskyldu sinni að bana og hafi fullyrt það þennan afdrifaríka morgun „til þess að lögreglan kæmi strax og greiddi úr þessu.“ Hún hafi viljað að þessu lyki sem fyrst og þótt of flókið að útskýra áform fjölskyldunnar og hvað hafi gerst. „En þetta væri ekki rétt. Hið sama ætti við um orð hennar við starfsmenn hótelsins,“ segir í dómnum. Héraðsdómur taldi að horfa þurfi til andlegs ástands hennar á þessum tíma og að í sjúkrabifreiðinni skömmu síðar hafi hún sagt að maðurinn hennar hefði ráðist á hana og dóttur hennar. Hún hafi síðan staðfastlega haldið sig við þann framburð að eiginmaður hennar hafi veitt mæðgunum stungusárin og síðan stungið sjálfan sig. „Er því varhugavert að draga víðtækar ályktanir af þessum orðum ákærðu einum og sér,“ segir í dómnum um þá staðhæfingu Mancel í upphafi um að hún hafi banað tveimur manneskjum. „Engu að síður geta þau gefið vísbendingu um að hlutræn þátttaka hennar í verknaðinum hafi verið meiri en hún hefur síðar haldið fram.“ Aðspurð hvers vegna hún hafi sagt „I am a monster“ eða „ég er skrímsli“ í skýrslu sinni hjá lögreglu á gjörgæsludeild Landspítalans 14. júní 2025 kvaðst Mancel hafa sagt þetta því þau hafi verið látin en hún enn á lífi. Hún hafi verið full vonleysis á spítalanum. Hafi ætlað að fara saman Mancel hefur haldið því fram að fjölskyldan hafi ákveðið að fremja sjálfsvíg saman og verknaðurinn hafi ekki reynst eins auðveldur og þau hafi séð í kvikmyndum. Eiginmaður hennar glímdi við illvígan sjúkdóm. Héraðsdómur taldi ekki sannað að dóttir þeirra hafi óskað eftir því að foreldrar hennar myndu ráða henni bana eða veitt samþykki sitt fyrir því að þau myndu enda líf hennar. Þvert á móti séu merki um að hún hafi veitt mótspyrnu á verknaðarstundu. Á sama tíma hafi ýmis gögn legið fyrir sem styðji framburð um að Mancel og eiginmaður hennar Emeric Xavier Mancel hafi verið búin að ákveða að svipta sig lífi. Fjarstæðukennt að ætla að hún hafi verið samþykk kyrkingunni Gögn benda til að dóttir þeirra hafi verið stungin tvisvar og samkvæmt krufningarskýrslu var snöru brugðið um háls hennar eftir fyrri stunguna og hert að í drjúga stund. „Á hálsinum hafi verið klórför sem þekkt séu í samhengi við tilraun þolanda til að losa sig úr kyrkingu. Benda áverkar á hálsi brotaþola til þess að hún hafi barist gegn því þegar snöru var brugðið um háls hennar. Samkvæmt því er fjarstæðukennt að ætla að brotaþoli hafi verið samþykk kyrkingunni, enda hefur ákærða ekki haldið því fram og raunar í framburði sínum ekki viljað eða getað veitt haldbærar upplýsingar sem varpað gætu ljósi á atvik kringum kyrkinguna,“ segir í dómnum. Að sama skapi sé ekki hægt að byggja á því að eftir kyrkinguna hafi dóttirin óskað eftir því að verða stungin á ný. Réttarlæknir hafi sagt að ólíklegt sé að fyrri stungan hafi haft miklar afleiðingar. Sú seinni hafi hæft hana í hjartastað og dregið hana til dauða. „Var því unnt að bjarga lífi hennar allt fram að seinni stungunni, sem dró hana til dauða. Samkvæmt framangreindu er ósannað að samþykki brotaþola hafi legið fyrir þegar henni var veitt banastungan.“ Engar skýringar á flakki eftir fyrri stunguna Ýmis önnur atriði bendi ekki til þess að atburðarásin hafi einkennst af þeirri samstöðu og átakaleysi sem Mancel hafi haldið fram. Einnig hafi engar skýringar komið fram á því hvers vegna dóttirin var með svefngrímu þegar hún lést, hvers vegna granítplata á baðherbergi brotnaði, á umferð milli hótelherbergja hennar og foreldranna skömmu fyrir klukkan 7 að morgni 12. júní eða hvers vegna dyrum að herbergi hafi verið læst og aflæst á víxl sjö sinnum á milli kl. 12:01 og 16:54 þennan sama dag. Miðað við framburð Mancel áttu þær hreyfingar í hurðalæsingakerfinu sér stað eftir að dóttir hennar hlaut fyrri stunguna. Ekki átt við geðrænan vanda Geðlæknir taldi ekkert benda til þess að Mancel hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum á verknaðarstundu. Hún sé ekki með alvarlegan geðsjúkdóm og ekkert í hennar sögu bendi til þess að hún hafi átt við geðrænan vanda að stríða um ævina. Þá taldi hann ekki að Mancel hefði verið „undir hælnum“ á eiginmanni sínum.“ Á hinn bóginn komst héraðsdómur að þeirri niðurstöðu að dóttirin hefði ekki haft mótstöðuþrek gagnvart foreldrum sínum og látið þetta yfir sig ganga. „Hún lét þetta gerast, hún kvartaði ekki“ Að mati héraðsdóms liggur ekkert fyrir um að dóttirin hafi viljað deyja á verknaðarstundu, jafnvel þótt hún hefði tjáð foreldrum sínum áður að hún vildi ekki lifa án þeirra. Mancel hafi lýst því svo að þau hafi ekki einu sinni á verknaðarstundu rætt við hana um að hnífi yrði beitt, heldur hafi henni orðið það ljóst þegar faðir hennar hafi dregið fram hníf. Mancel hafi vitað að hún væri ekki sátt við það og dóttirin hafi á þessu tímamarki sýnt vanþóknun sína með svipbrigðum. Engu að síður hafi þau látið hana setjast á stól í baðherberginu og þar hafi hún verið stungin með hnífi. Gengið hafi verið hratt til verks. Engin samskipti hafi átt sér stað fyrir stunguna samkvæmt Mancel sem sagði að ákvörðunin hafi þegar verið tekin og ekkert frekar að ræða. Aðferðin skipti ekki máli. Aðspurð hvernig brotaþoli hafi brugðist við fyrri stungunni sagði Mancel: „Hún lét þetta gerast, hún kvartaði ekki“. Ekki boðið henni aðra raunhæfa kosti Taldi héraðsdómur að Mancel hafi ekki mátt ætla að verknaðurinn hafi verið gerður með afdráttarlausu samþykki dóttur sinnar. „[...] hafi honum þvert á móti verið hrundið í framkvæmd af skeytingarleysi um vilja eða afstöðu brotaþola.“ Telur dómurinn að álykta verði að hún hafi upplifað þrýsting af þeirra hálfu við þessar aðstæður. „Verður ekki séð annað en að vilji foreldranna hafi staðið til þess að hún myndi fylgja þeim og að þau hafi ekki boðið henni neina aðra raunhæfa kosti né hvatt hana til annars.“ Vildi ekki skilja hana eftir Samkvæmt Mancel átti eiginmaður hennar hugmyndina að því að þau myndu öll deyja saman og hún sjálf fallist á það. Þau hafi kynnt dóttur sinni ráðagerð sína en ekki hugað neitt að því hvernig hún gæti haldið lífinu áfram án þeirra. Hefur Mancel lýst því að hún hafi talið rökrétt að dóttir þeirra myndi fylgja þeim. Þá liggur fyrir trúverðugur framburður hjúkrunarfræðings á bráðamóttöku og lögreglumanns um að Mancel hafi sagt þegar þessir atburðir voru nýafstaðnir: „Eiginmaður minn er með alvarlega lifrabilun og ég vildi ekki skilja dóttur okkar eftir eina.“ Mancel gerði lítið úr hlut sínum í manndrápinu á dóttur sinni og samkvæmt réttarlækni mælir ekkert gegn því að eignmaður hennar hefði einn getað beitt snöru á háls dótturinnar þrátt fyrir heilsufar hans og visna hægri hönd. Að mati héraðsdóms tókst ákæruvaldinu ekki að sýna fram á að Mancel hafi sjálf beitt þeim vopnum gegn dóttur sinni sem henni var banað með og Mancel ætti að njóta vafans. Framdi brotið í félagi við eiginmann sinn Að mati héraðsdóms framdi Mancel brotið í félagi við eiginmann sinn Emeric Xavier Mancel sem er nú látinn. Það að Mancel hafi sagt „I am a monster“ í fyrstu skýrslu hjá lögreglu gaf frekar til kynna að atvik hafi ekki verið með þeim átakalausa hætti sem hún hefur greint frá, að mati héraðsdóms. Að mati dómsins er ótrúverðugt að orðin hafi aðeins helgast af vonleysi ákærðu og vonbrigðum yfir þeirri staðreynd að hún væri ein eftir á lífi. Dómurinn horfði til þess við ákvörðun refsingar að þáttur Mancel við skipulagningu og framkvæmd verknaðarins hafi verið minni en ætlaður þáttur eiginmanns hennar. Á móti kom til þyngingar að brotið var unnið í samverknaði, beindist að dóttur Mancel og var framið á „sársaukafullan og miskunnarlausan hátt.“ Brotið hafi verið skipulagt og ásetningur hennar staðfastur og einbeittur. Auk tólf ára fangelsisdóms var Mancel gert að greiða málsvarnarlaun og sakarkostnað upp á rúmar níutján milljónir króna. Fréttin er í vinnslu. Manndráp á Reykjavík Edition Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Mest lesið „Ég er skrímsli“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Sjá meira