Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, Hermann Ingi Gunnarsson, Unnur Brá Konráðsdóttir, Jóhanna Hreinsdóttir, Ásta Stefánsdóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Bergþór Bjarnason og Haraldur Þór Jónsson skrifa 4. ágúst 2026 15:31 Við sem störfum í sveitarstjórnarmálum höfum séð hvað gerist þegar fólk þorir að fjárfesta í atvinnustarfsemi. Ný fyrirtæki verða til, störfum fjölgar, þjónusta eflist og fleiri sjá framtíð í eigin heimabyggð. Þetta gerist ekki af sjálfu sér heldur vegna þess að einstaklingar og fyrirtæki eru tilbúin að taka áhættu, leggja eigið fé undir og trúa á framtíð samfélaganna sem þau búa í. Þannig byggjast sterk samfélög upp. Sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér Fáar atvinnugreinar hafa haft jafn mikil áhrif á þróun samfélaga um land allt og ferðaþjónustan, sem er orðin ein mikilvægasta stoð atvinnulífs víða um land og hefur skapað grundvöll fyrir fjölbreyttari atvinnutækifæri, aukna þjónustu og sterkari samfélög. Sveitarfélög hafa stutt við þá þróun í gegnum skipulag og innviðauppbyggingu, en uppbyggingin hefst alltaf með því að einhver þorir að stíga fyrsta skrefið. Baðlón eru eitt skýrasta dæmið um þessa þróun. Í fjölmörgum sveitarfélögum víðsvegar um land hafa þau orðið drifkraftur nýrrar atvinnuuppbyggingar. Baðlón eru ekki aðeins áfangastaðir heldur skapa þau heilsársstörf, auka aðdráttarafl svæðanna og styrkja rekstrargrundvöll fjölmargra annarra fyrirtækja. Við vitum af eigin reynslu hvaða áhrif slík verkefni hafa á sveitarfélög. Þegar öflug ferðaþjónustufyrirtæki byggjast upp verða þau kjölfesta atvinnulífs, efla þjónustu á svæðinu, auka umsvif hjá öðrum fyrirtækjum og styrkja tekjustofna sveitarfélaganna. Áhrifin ná langt út fyrir fyrirtækin sjálf. Þau verða hluti af þeirri samfélagsuppbyggingu sem sveitarfélög um land allt byggja framtíð sína á. Skattur á framtakssemi? Við getum flest verið sammála um eitt: Landsbyggðin verður sterkari þegar ný fyrirtæki verða til þar, heilsársstörfum fjölgar og verðmætasköpun eykst. Þess vegna eigum við erfitt með að sjá hvernig fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% styður við áframhaldandi uppbyggingu, fjárfestingar og aukna verðmætasköpun á landsbyggðinni. Í reynd vekur það sérstaka athygli að þessi breyting leggst fyrst og fremst á atvinnugrein sem hefur skapað fjölda heilsársstarfa utan höfuðborgarsvæðisins. Því er eðlilegt að margir upplifi hana sem skatt sem leggst þyngst á landsbyggðina. Við gerum okkur líka grein fyrir að ríkissjóður þarf tekjur. En skattabreytingar verða að standast mat á áhrifum þeirra á fjárfestingu, atvinnu og byggðaþróun. Áður en gripið er til breytinga sem geta haft svo víðtæk áhrif á atvinnulíf og uppbyggingu á landsbyggðinni þarf að liggja fyrir vandað mat á samfélagslegum áhrifum þeirra. Jafnframt þarf að tryggja nægan tíma til málefnalegrar umræðu og vandaðs undirbúnings áður en slíkar breytingar taka gildi. Það er sú umræða sem við teljum að eigi eftir að fara fram. Traust er forsenda fjárfestingar Fjárfestingar byggjast á trausti og fyrirsjáanleika. Fjárfestar taka ákvarðanir til áratuga en ekki til eins fjárlagaárs. Erlendar ferðaskrifstofur og aðrir samstarfsaðilar selja Ísland sem áfangastað mörgum mánuðum, jafnvel árum, áður en ferðamaðurinn kemur hingað. Þeir þurfa að geta treyst því að rekstrarforsendur breytist ekki með skömmum fyrirvara, alveg eins og þeir fjárfestar sem standa að uppbyggingu ferðaþjónustu um allt land. Þegar leikreglum er breytt eftir að fjárfest hefur verið eykst óvissan og hún nær langt út fyrir baðlónin sjálf. Fyrirsjáanleiki skiptir öllu máli. Við vitum af eigin reynslu hvað gerist þegar fólk þorir að byggja upp. Við vitum líka hvað gerist þegar það hættir að þora. Munurinn á samfélagi sem vex og samfélagi sem stendur í stað er oft ekki nema ein ákvörðun um nýtt verkefni. Slíkar ákvarðanir verða aðeins teknar ef fólk treystir því að leikreglurnar séu stöðugar og fyrirsjáanlegar. Þess vegna teljum við að landsbyggðin eigi skilið skýr svör áður en tekin er ákvörðun sem getur haft áhrif langt út fyrir baðlónin sjálf. Því að lokum snýst þetta ekki aðeins um skattþrep. Það snýst um traust. Það snýst um framtíð fjárfestinga á landsbyggðinni. Samfélög byggjast upp þegar fólkið þar þorir að byggja upp. Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson, oddviti sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings Hermann Ingi Gunnarsson, oddviti sveitastjórnar Eyjarfjarðarsveitar Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar Jóhanna Hreinsdóttir, sveitarstjóri Kjósarhrepps Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings Haraldur Þór Jónsson, oddviti sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hermann Ingi Gunnarsson Bergþór Bjarnason Haraldur Þór Jónsson Sundlaugar og baðlón Sveitarstjórnarmál Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar