Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. ágúst 2026 15:01 Ása Steinars er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins og hefur byggt upp öflugt vörumerki á síðustu tíu árum. Sýn Ferðaljósmyndarinn Ása Steinarsdóttir hefur skapað sér nafn fyrir stórbrotnar ljósmyndir úr íslenskri náttúru og sankað að sér meira en tveimur milljónum fylgjenda á samfélagsmiðlum. Ása var viðmælandi í nýjasta þætti Íslands í dag og veitti þar innsýn inn í líf og störf eins áhrifamesta kynningarafls íslenskrar ferðaþjónustu.
Ása hóf ferðaljósmynda- og áhrifavaldaferil sinn á miðjum þrítugsaldri og hefur ferðast víða um heim með myndavélina að vopni. Stjarna hennar á hinum ýmsu samfélagsmiðlum hefur vaxið hratt síðan þá. Hvernig kom þetta til í byrjun? „Þetta sprettur út frá rosamiklum áhuga á útivist og náttúru en líka ljósmyndun. Þannig þetta byrjar allt út frá ljósmyndun og ferðalögum. Ég er búin að vera að gera þetta í bráðum tíu ár og byrjaði í rauninni með blogg, ferðablogg sem þróaðist út á samfélagsmiðlana,“ segir Ása. „Ég var alltaf að reyna að fara frá Íslandi og ljósmynda frekar erlendis,“ segir Ása. „En það var ekki fyrr en ég fór að ljósmynda Ísland sem það fór að vekja mikinn áhuga hjá fólki. Á þessum tíma hafði fólk ekki séð ljósmynd af svartri strönd, jöklum eða norðurljósunum,“ bætir hún við. View this post on Instagram A post shared by Asa Steinars (@asasteinars) Orðið að persónulegu vörumerki Síðustu ár hefur síða Ásu þróast meira út í persónulegt vörumerki. „Samfélagsmiðlarnir eru ekki lengur svona miðlar til þess að deila bara ljósmyndum. Þú þarft líka að vera svolítið persónulegur til þess að fólk tengi við þig og nenni að fylgjast með efninu þínu,“ segir hún. Sterkasti fylgjendahópur Ásu er á Instagram þar sem hún er með 1,5 milljón fylgjenda en hún er líka virk víðar. Á Facebook er hún með hálfa milljón fylgjenda, á TikTok eru þeir yfir sjöhundruð þúsund og á Youtube rúmlega 130 þúsund. „Á heildina litið eru þetta yfir tvær milljónir að fylgja okkur,“ segir Ása. Hvað þýðir það fyrir áhrifavald að vera með svona gífurlega marga fylgjendur? „Eins og ég lít á þetta þá opnar þetta rosalega mikið af tækifærum sem mig hefði aldrei getað dreymt um, fá að vinna með alþjóðlegum fyrirtækjum og mikið af ótrúlega flottum íslenskum fyrirtækjum,“ segir Ása. „Við vinnum þvert á ferðaþjónustuna og erum náttúrulega alltaf á ferðalagi um landið.“ Hjónin vinna náið saman Þessi mikla ævintýrakona fór út fyrir landsteinana til að finna sér mannsefni en hinn sænski Leo er ekki bara eiginmaður heldur náinn samstarfsmaður Ásu í öllum þeirra verkefnum. Nú vinnið þið hjónin mjög náið saman. Hvernig er að vinna með manninum sínum? „Mér finnst það frábært,“ segir Ása, hlær og horfir á eiginmanninn sem er ekki í mynd. Hvernig finnst þér að vinna með konunni þinni? „Mér finnst það frábært,“ svarar eiginmaðurinn, Leo Sebastian Alved, á sama máta. View this post on Instagram A post shared by Asa Steinars (@asasteinars) Hjónin hafa upplifað margt skemmtilegt í störfum sínum en eitt af því sem stendur upp úr hjá Ásu var þegar þau hjónin fengu að vera ein í tómu Bláa lóninu í heimsfaraldrinum. Leo nefnir hins vegar þegar hjónin fluttu til Flateyrar í heilan mánuð og skíðuðu þar í frábærri færð og góðu veðri. Horfa má á viðtalið í heild sinni hér að ofan þar sem Ása ræddi meðal annars um lopapeysusölu hjónanna, heimili þeirra í Garðabæ og bestu áfangastaðin á Íslandi.
Ísland í dag Ferðalög Samfélagsmiðlar Mest lesið „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Lífið Örvar og María Elísabet nýtt listapar Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Fleiri fréttir „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Sjá meira