Hallalaus fjárlög ekki í spákortum AGS fyrr en árið 2031
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væntir þess að það takist ekki að skila afgangi á rekstri ríkissjóðs fyrr en á árinu 2031, samkvæmt spá sjóðsins, en núgildandi fjármálaáætlun stjórnvalda gerir hins vegar ráð fyrir hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Sjóðurinn horfir aðeins til aðgerða sem þegar er búið að leggja fram fyrir Alþingi og segir markmið stjórnvalda í ríkisfjármálum vera „hæfilega metnaðarfull.“
Tengdar fréttir
Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa farið fram á að ríkisstjórnin endurreikni fjármálaáætlunina þar sem forsendur hennar séu brostnar. Starfsáætlun þingsins var kippt úr sambandi í dag þar sem enn á eftir að ljúka stórum málum.
Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag.
Fjármálaráðherra boðar frekari viðbótarskattlagningu á fjármálafyrirtæki
Ein af þeim aðgerðum sem áformað er að ráðast í til að „styrkja tekjugrunn“ ríkissjóðs er að afla enn meiri viðbótarskatttekna frá fjármálafyrirtækjum, samkvæmt nýrri fjármálaáætlun stjórnvalda, en í fyrra greiddu bankarnir samtals um átján milljarða í sérstaka skatta.
AGS varar við aukinni hættu á að hagvöxtur reynist minni en verðbólga meiri
Taumhald peningastefnu Seðlabankans þarf áfram að vera „nægjanlega þétt um nokkurt skeið“ eigi að tryggja varanlega og sjálfbæra hjöðnun verðbólgu, að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en sendinefnd sjóðsins varar einnig við því að vegna átakanna við Persaflóa sé aukinn áhætta á að hagvöxtur muni reynast minni en verðbólga meiri. Þá leggur sjóðurinn til að opinberir starfsmenn taki þátt í kjaraviðræðum samhliða einkageiranum þannig að samningalotur séu betur samstilltar, sem myndi þá stuðla að launaþróun í samræmi við framleiðnivöxt og verðbólgu.
Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“
Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.