Innlent

„Það bara fannst ekki neitt“

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Á myndinni má sjá blokkirnar að Asparfelli. Myndin er úr safni.
Á myndinni má sjá blokkirnar að Asparfelli. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst rétt fyrir klukkan fimm síðdegis tilkynning um reyk á stigagangi í Asparfelli. Viðbragð slökkviliðs er þó nokkuð þar sem um stórt fjölbýlishús er að ræða.

„Við settum allar stöðvar af stað,“ segir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

„Við settum fullt útkall á þetta,“ kom fram í fyrsta samtali okkar við slökkvilið en fljótt skipast veður í lofti því upptök reyksins fundust aldrei.

„Það var ekkert að slökkva, við fundum aldrei hvað þetta var,“ upplýsir Sigurjón.

„Það var einhver reykjarslæða og smá lykt í stiganginum en það bara fjaraði út meðan við vorum á staðnum. Það var farið út um allt húsnæðið, þreifað á öllum hurðum og bankað þar sem einhver var heima, leitað á öllum stigaganginum og farið á bak við hús en það bara fannst ekki neitt.“

„Það er bara engin skýring,“ segir Sigurjón. „Þetta kemur stundum upp.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×