„Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 1. september 2026 21:03 Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir máva ekki valda raunverulegum skaða í stóra samhenginu. Þó fari þeir vissulega í taugarnar á fólki. Fólki er misvel við máva en íbúar höfuðborgarsvæðisins segja margir farir sínar ekki sléttar af fuglunum og atgangi þeirra síðastliðnar vikur. Ekki sé við þá að sakast enda um svanga og óharðnaða unglinga að ræða, að sögn fuglafræðings. „
Þetta er söngur sem kemur upp á hverju einasta ári og er búið að gera í áratugi,“ segir Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur og ljósmyndari, en hann var til viðtals í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag aðspurður um „agressíva máva úti um alla borg.“ Sílamávsungar séu nú nýflognir úr hreiðrinu, séu svangir og „kunna ekkert á lífið ennþá“. Sjái ungarnir eitthvað sem hugsanlega gæti verið æti rjúki þeir bara í það, hvort sem það sé á grillinu eða í höndum fólks. Töluvert af sílamávi verpi á Innnesjum og í kringum Reykjavík. Síðsumars eru mávarnir nýfarnir að heiman og geta verið afar soltnir. Vísir/Vilhelm Aðeins sé um stutt tímabil sumars að ræða segir Jóhann, enda séu sílamáfar farfuglar sem fari nú að flytja sig suður á bóginn. Mávarnir séu þegar fáir eftir á landinu og að öllum líkindum verði allir farnir undir lok mánaðar. „Þetta er hvimleitt tímabil sem maður bara leiðir hjá sér og hugsar fallega til fuglanna. Þeir fara svo suður til Spánar og Marokkó fljótlega og hafa það bara gott. Ég myndi gjarnan fara með þeim bara,“ segir Jóhann. Auk þess séu mávarnir fyrir löngu búnir að átta sig á því að mannfólkið sé auðveldasta matarlindin. „Þú sérð það bara hvað þeir sækja í brauðið á Tjörninni sem er ætlað öndunum. Þeir eru ekkert að spá í það hverjum það er ætlað, þeir bara sjá mat og éta hann. Þeir eru náttúrulega að reyna að seðja hungrið.“ Fallegir og tignarlegir fuglar Mávarnir geti verið ansi skæðir mófuglaungum fyrr á sumrin en þá séu foreldrar að útvega ungunum æti. Þeir séu alætur en þó virðist það að leggjast á aðrar fuglategundir vera einstaklingsbundið eftir mávum. „Þetta virðist samt vera einstaklingsbundið. Það er svona kannski einn af hverjum hundrað fuglum sem leggst á aðra fugla.“ Í stóra samhenginu valdi þeir þó engum skaða heldur fari þeir aðallega í taugarnar á fólki. Jóhanni finnst fólk eiga að vera jákvætt í garð mávanna. „Mér finnst bara fólk eiga að reyna að vera jákvætt. Þetta eru fallegir fuglar og tignarlegir. Þeir eru töffarar,“ segir Jóhann Óli.
Dýr Fuglar Bylgjan Reykjavík síðdegis Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira