Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Kjartan Kjartansson skrifar 10. ágúst 2026 11:59 Úkraínumenn hafa ítrekað sprengt upp olíuhreinsistöðvar í Rússlandi að undanförnu. Selenskí forseti Úkraínu segir árásunum ætlað að grafa undan vígvél Rússa og þvinga þá að samningaborðinu. AP/Darko Vojinovic Þrettán manns í það minnsta eru sagðir hafa fallið í drónaárás Úkraínumanna á olíuhreinsistöð í rússneska sambandslýðveldinu Tatarstan í nótt. Rússnesk yfirvöld fullyrða að eitt barn sé á meðal þeirra föllnu í árásinni sem er ein sú blóðugusta frá upphafi allsherjarinnrásar Rússa í Úkraínu.
Auk þeirra látnu eru 75 sagðir særðir í Nizhnekamsk í Tatarstan, sjálfstæðu lýðveldi innan Rússneska sambandsríkisins. Borgin er í rúmlega 1.100 kílómetra fjarlægð frá landamærum Rússlands og Úkraínu. Úkraínuher staðfesti að hann hefði gert drónaárás á Tanevo-olíuhreinsistöðina í borginni. Hann hefur ekki tjáð sig um fullyrðingar rússneskra stjórnvalda um að árásin hafi einnig beinst að íbúabyggð og að óbreyttir borgarar hafi fallið. Breska ríkisútvarpið BBC segist ekki hafa staðfest fullyrðingar rússneskra yfirvalda sjálft. Rússar segjast jafnframt hafa skotið niður á fimmta hundrað úkraínskra dróna í nótt. Úkraínumenn hafa fært sig verulega upp á skaftið í landrægum árásum langt inn fyrir landamæri Rússlands á undanförnum mánuðum. Þeir segjast vega að ýmsum tekjulindum rússneska ríkisins sem fjármagni hernaðinn í Úkraínu. Sjúkraliðar flytja særðan íbúa blokkar í Kharkiv á börum eftir að rússnesk sprengja hæfði hana í gær.AP/Andrii Marienko Nær daglegar skotflaugaárásir Rússa á úkraínskar borgir héldu áfram í gær. Tveir eru sagðir látnir og þrettán særðir eftir að skotflaug hæfði íbúðarblokk í Kharkiv. Átta til viðbótar særðust í skotflauga- og drónaárásum á hafnarborgina Odessu við Svartahaf. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að vöruhús hennar með neyðarbirgðum í Dnipro í Úkraínu hafi í tvígang orðið fyrir sprengjum á innan við sólarhring á föstudag. Upphaflega hafið verið ráðist á vöruhúsið, sem innihélt sjúkragögn fyrir hermenn á víglínunni, á mánudag í síðustu viku. Rétt eftir að lokið var við að tæma húsið á föstudag hafi það aftur orðið fyrir sprengju. Það hafi svo verið endanlega eyðilagt í þriðju sprengingunni innan við sólarhring síðar.
Rússland Úkraína Hernaður Innrás Rússa í Úkraínu Bensín og olía Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira