Innlent

Báturinn fannst eftir nokkuð um­fangs­mikla leit

Árni Sæberg skrifar
Björgunarskip Landsbjargar tóku þátt í leitinni að bátnum. Myndin er úr safni.
Björgunarskip Landsbjargar tóku þátt í leitinni að bátnum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Lítill skemmtibátur sem Landhelgisgæslan hóf eftirgrennslan um í morgun er fundinn. Áður en hann fannst var leit að bátnum orðin nokkuð umfangsmikil og björgunarsveitir höfðu verið kallaðar út. Þá var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar í þann mund að taka á loft þegar samband náðist við áhöfn bátsins.

Þetta segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við Vísi. Vísir greindi frá því fyrir hádegi að Landhelgisgæslan væri að grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum, sem hafði ekki tilkynnt um staðsetningu sína í um tvær klukkustundir.

Upphaflega var eftirgrennslanin ekki umfangsmikil en að sögn Ásgeirs var bætt í þegar lengra leið frá því að bátnum var siglt frá landi. Eftir nokkuð umfangsmikla leit hafi hann fundist út af Syðrahrauni og allt farið vel á endanum.

Enn sem komið er hafi Landhelgisgæslan enga skýringu fengið á því hvers vegna ekki náðist samband við áhöfn bátsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×