Fullveldi þjóðar og fullveldi ríkis Þorsteinn Siglaugsson skrifar 11. ágúst 2026 20:01 Fullveldishugtakið hefur verið áberandi í umræðunni um mögulega aðild að Evrópusambandinu og þá gagnvart spurningunni um fullveldi ríkis gagnvart öðrum ríkjum. Skilningur margra þeirra sem mest tala um fullveldi er að vísu óhefðbundinn svo því sé til haga haldið, enda væru hvorki Danmörk, Svíþjóð, Holland né Belgía fullvalda ríki samkvæmt honum. Spurningin um fullveldi snýr hins vegar ekki aðeins að fullveldi ríkis gagnvart öðrum ríkjum, því sem við getum kallað ytra fullveldi. Innan vestrænnar lýðræðishefðar snýr hún ekki síður, og jafnvel enn frekar að stöðu almennings, þjóðarinnar sjálfrar innan landamæra ríkisins. Til að þjóð sé fullvalda í lýðræðislegum skilningi nægir ekki að ríkið sé sjálfstætt gagnvart öðrum ríkjum - njóti ytra fullveldis, þjóðin sjálf þarf að hafa hið endanlega vald - njóta innra fullveldis. Uppruni valdsins hjá þjóðinni sjálfri Umfjöllun Jean-Jacques Rousseau í Le contrat social snýst einmitt um þetta. Fullveldið (fr. souverainité) segir hann grundvallast á almannaviljanum (fr. volonté génerale) sem verði ekki framseldur til fulltrúa í sama skilningi og framkvæmdavald til stjórnvalds, enda vilji ekki framseljanlegur. Alexis de Tocqueville lýsir í De la démocratie en Amérique fullveldi þjóðarinnar sem þeirri grundvallarreglu sem bandarísk stjórnskipun byggist á, þ.e. þjóðin beiti valdi sínu bæði sjálf og fyrir milligöngu fulltrúa. Carl Schmitt greinir í Verfassungslehre á milli stjórnarskrárgjafavalds og þess valds sem stofnanir ríkisins fara með samkvæmt stjórnarskránni, samfélagssáttmála þjóðarinnar. Í lýðræðisríki sé þjóðin handhafi frumvaldsins en þing, ríkisstjórn og aðrar stofnanir fari með afleitt vald. Á endanum er svo sjálfsákvörðunarréttur einstaklingsins hinn siðferðilegi grundvöllur innra fullveldis þjóðarinnar. Togstreita milli ytra og innra fullveldis Ytra fullveldi ríkis þarf ekki að merkja að þjóðin njóti innra fullveldis. Norður-Kórea er til dæmis fullvalda ríki gagnvart öðrum ríkjum í hefðbundnum þjóðaréttarlegum skilningi. Norður-kóreska þjóðin er hins vegar ekki fullvalda í lýðræðislegum skilningi, því endanlegt pólitískt vald liggur ekki hjá henni. Þannig getur ríki verið fullvalda án þess að þjóðin sé það. Fræðilega séð getur þjóð jafnvel ákveðið að takmarka athafnafrelsi valdhafa til að vernda eða efla innra fullveldi sitt og fullveldi einstaklinganna. Hún getur til dæmis bundið ríkið með mannréttindasáttmála, alþjóðlegu dómsvaldi eða yfirþjóðlegu samstarfi sem takmarkar vald tímabundins þingmeirihluta eða framkvæmdavalds. Slíkt felur ekki í sér afsal innra fullveldis þjóðarinnar. Það getur þvert á móti verið meðvituð beiting þess, þjóðin ákveður sjálf að setja ríkisvaldinu slíkar skorður. Verður umboð þjóðarinnar virt? Atkvæðagreiðslan 29. ágúst næstkomandi snýst um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún snýst ekki um sjálfa aðildina heldur hvort þjóðin sé tilbúin að veita ríkisstjórn Íslands umboð til aðildarviðræðna óháð því hver fer með völdin. Að því gefnu að umboð þjóðarinnar fáist er síðan gert ráð fyrir að hugsanlegur aðildarsamningur verði einnig borinn undir þjóðina. Ýmsir hafa bent á að nýr þingmeirihluti gæti ákveðið að fylgja ekki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin er á grundvelli þingsályktunar fyrra þings, þrátt fyrir að samkvæmt greinargerð með þingsályktunartillögunni sem var samþykkt á Alþingi með meirihluta atkvæða skuli þjóðaratkvæðagreiðsla fara fram um endanlegan samning. Til þess að niðurstaðan væri lagalega bindandi þyrftu áhrif hennar að vera ákveðin í lögum eða stjórnarskrá að margra mati. Þannig gæti sú staða komið upp að þjóðin veiti skýrt umboð til áframhaldandi viðræðna en nýr þingmeirihluti eða ríkisstjórn stöðvi þær áður en samningur liggur fyrir, eða jafnvel eftir að hann liggur fyrir, en áður en til atkvæðagreiðslu kemur. Þar með gæti nýr þingmeirihluti komið í veg fyrir að þjóðin fengi tækifæri til að taka afstöðu til endanlegs aðildarsamnings. Þessi möguleiki er ekki aðeins fræðilegur. Einhverjir fulltrúar stjórnarandstöðunnar hafa gefið skýrt til kynna að sigri þeir að eigin mati í næstu Alþingiskosningum kunni þeir að túlka það sem umboð til að stöðva viðræðurnar, jafnvel þótt meirihluti þjóðarinnar hefði áður samþykkt að viðræður yrðu teknar upp að nýju, þeim lokið og samningur borinn undir þjóðina. Að hrópa um fullveldi en hafna því um leið Slík ákvörðun væri ekki ólögmæt, enda nýtt þing ekki bundið af ályktunum fyrra þings lögformlega séð eins og bent hefur verið á. Hún myndi vissulega ekki skerða ytra fullveldi íslenska ríkisins, en hins vegar má færa fyrir því sterk rök að hún gengi þvert gegn innra fullveldi þjóðarinnar sem hins endanlega handhafa lýðræðislegs valds. Þetta má skýra með samlíkingu við réttarfarslegt stigveldi. Líkingin felst ekki í því að þjóðaratkvæðagreiðsla sé sambærileg æðra dómstigi og Alþingi sé lagalega bundið af honum eins og lægra dómstig. Hún felst í formgerðinni: Þegar máli hefur verið vísað til æðra dómstigs verður það mótsagnakennt að lægra stigið áskilji sér rétt til að setja eigin niðurstöðu ofar niðurstöðu hins æðra. Í réttarkerfinu er um formlegt stigveldi að ræða. Í stjórnmálunum er um að ræða stigveldi lýðræðislegs umboðs þar sem þjóðin sjálf hefur lokaorðið. Ýmsir andstæðingar áframhaldandi samningaviðræðna við Evrópusambandið hafa á undanförnum mánuðum beitt sér ákveðið gegn innra fullveldi þjóðarinnar. Fyrst með því að reyna að hindra þjóðaratkvæðagreiðsluna sem nú stendur fyrir dyrum, síðan með endurteknum tilraunum til að sannfæra almenning um að hún snúist um annað en hún snýst um, og loks með yfirlýsingum um að niðurstaða hennar kunni að verða virt að vettugi nái þeir völdum. Það er kaldhæðnislegt hvernig þessir aðilar hafa að miklu leyti grundvallað málflutning sinn á skírskotun til verndar fullveldisins um leið og þeir hafna sjálfum kjarna þess, endanlegu úrskurðarvaldi þjóðarinnar sjálfrar. Höfundur er heimspekingur og hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorsteinn Siglaugsson Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun