Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Agnar Már Másson skrifar 15. ágúst 2026 15:32 Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar. Krónan Framkvæmdastjóri Krónunnar segir margt við nýja umbúðareglugerð Evrópusambandsins ekki henta íslenskum markaði. Verslunin hafi lengi reynt að nýta svokallaðar áfyllingarlausnir en neytendur ekki tekið vel í þær. Hún vonar að lausn finnist fyrir Íslendinga ef EFTA-ríkin innleiða reglugerðina.
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endurnotkun og gera umbúðir endurvinnanlegar. Engu að síður valdi margt í reglunum áhyggjum, meðal annars að frá 2030 verði takmarkanir á einnota plastumbúðum utan um forpakkaða, óunna ferska ávexti sem eru léttari en eitt og hálft kíló. Þetta telur Guðrún vera óhentugt fyrir íslenskan markað þar sem flutningstími ávaxta til Íslands sé gjarnan lengri. Sömuleiðis eiga verslanir sem eru stærri en 400 fermetrar að leitast við að verja 10 prósentum af sölusvæði sínu í áfyllingarlausnir frá árinu 2030. Guðrún segir að á undanförnum árum hafi Krónan reynt að fjölga slíkum lausnum í verslunum sínum, svo sem með þurrvörubar, sápubar og mjólk í áfyllingu, en það ekki skilað miklum árangri. „Við höfum svona verið að reyna að hvetja neytendur til þess að taka þátt í þessu með okkur að koma þá með endurfyllanleg ílát, en reynsla okkar er að við erum annaðhvort bara ekki nógu stór markaður eða þá að íslenskir neytendur eru ekki tilbúnir eða hafa ekki nægilega mikinn áhuga á svona lausnum,“ segir Guðrún. Einnig frá 2030 er gert ráð fyrir að að minnsta kosti 10% tiltekinna drykkjarvara verði boðin í fjölnota umbúðum, sem síðan verði skilað aftur í verslun. Hún vonast til þess að einhverjar undanþágur fáist fyrir Ísland en EFTA ríkin ræða enn sín á milli um hvort þessi reglugerð verði innleidd eða ekki. „Og þetta er auðvitað gríðarlega mikil breyting á hlutverki verslunar og maður hugsar á Íslandi að það sé mjög hátt endurvinnsluhlutfall hjá okkur og þarna vill maður hugsa þetta þannig að við eigum ekki bara að uppfylla reglur til að uppfylla reglur heldur eigum við að hugsa um markmiðið og sjá hvaða leið er best fyrir okkur á þeirri leið, að því markmiði, og gengur vel í dag með endurvinnslu,“ segir Guðrún.
Matvöruverslun Neytendur Evrópusambandið Matvælaframleiðsla Verslun Mest lesið Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira