Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. ágúst 2026 07:35 Einn sakborninga Reykholtsmálsins þegar mállið var þingfest í mars. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.
Aðalmeðferðin hefst klukkan 9 í dag. Reiknað er með því að hún taki sjö daga sem er óvenju langur tími. Hin ákærðu eru Sigurður Gunnar Ásgeirsson og Ingunn Rut Sigurðardóttir dóttir hans. Andri Már Mortensen Birgisson, unnusti Ingunnar, er einnig ákærður og Pétur Már Mortensen Birgisson, bróðir hans. Þá er Níels Pálmar Benediktsson og Halldór Logi Sgurðsson einnig ákærðir. Sigurður, Ingunn Rut, Andri Már og Pétur Már voru öll handtekin árið 2024. Allir sex neituðu sök við þingfestingu málsins þann 16. mars síðastliðinn. Tveir þeirra mættu fyrir dómara en hinir voru viðstaddir í gegnum fjarfundarbúnað, Halldór frá fangelsinu á Hólmsheiði. Hótað með keðjusög Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum er því lýst hvernig Andri Már, Halldor Logi og Níels Pálmar eiga að hafa ruðst inn á heimili mannsins föstudaginn 19. apríl, beitt hann alvarlegu og grimmdarlegu ofbeldi og hótað honum lífláti. Andri Már á að hafa snúið upp á fingur mannsins svo hann brotnaði og Níels tekið um háls og höfuð hans og snúið upp á líkama hans. Sigurður á að hafa komið nokkrum sinnum á heimili mannsins á meðan, ógnað honum með keðjusög og að fara með hann á bát til Grænlands og henda honum útbyrðis. Ingunn Rut og Pétur Már eiga að hafa mætt á laugardagsmorgun og haldið barsmíðunum áfram auk Andra Más. Loks eiga þau fjögur að hafa farið með manninn í verslun Símans, látið setja þar upp rafræn skilríki og loks millifært tæpar átján milljónir króna á sig sjálf. Andri Már á að hafa séð um millifærslurnar og millifærði 8,5 milljónir á reikninga í sinni eigu, tæpar tvær milljónir á reikning í eigu Sigurðar, 3,7 milljónir á reikning í eigu Péturs Más og að lokum 3,5 milljónir á reikning í eigu Ingunnar. Einnig eiga þau að hafa notað peninginn í að kaupa flugmiða fyrir manninn til Möltu, keyrt hann upp á flugvöll og hótað því að gera dóttur hans mein ef hann myndi ekki fara úr landi. Í ákærunni segir að vegna áverkanna hafi maðurinn meðal annars hlotið blæðingu í framheila, brot í nefbeini, tapað fimmtán tönnum og fjögur rifbeinsbrot. Fréttin hefur verið uppfærð og leiðrétt að Halldór Logi er ekki sonur Sigurðar sem er ákærður.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira