Lækkum álögur og afnemum byggingarrétt af atvinnulóðum Bragi Bjarnason skrifar 13. ágúst 2026 13:02 Samfélag er ábyrgð okkar allra og uppbygging atvinnustarfsemi er ein af forsendum þess að samfélag vaxi á sjálfbæran hátt. Að mínu mati eiga sveitarfélög að styðja þessháttar uppbyggingu svo sem með lægri álögum og nægu lóðaframboði. Sveitarfélagið Árborg hefur stigið skref í þessa átt með því að afnema byggingarréttargjöld af atvinnulóðum, lækka gatnagerðargjöld og hefja undirbúning á nýjum svæðum undir atvinnustarfsemi. Spennandi svæði til uppbyggingar Sveitarfélagið Árborg hefur, líkt og mörg sveitarfélög hér í grennd, vaxið töluvert á undanförnum árum. Á þetta bæði við uppbyggingu íbúða og atvinnustarfsemi. Núna eru nokkur spennandi svæði innan Árborgar þar sem finna má lausar lóðir til uppbyggingar atvinnustarfsemi og fleiri slík í undirbúningi. Má þar nefna atvinnusvæði suður af Selfossi sem og í nálægð við nýjan Suðurlandsveg, ásamt lóðum við Eyrarbakka og Stokkseyri. Nálægð Árborgar við höfuðborgarsvæðið, inn- og útflutningshöfn í Þorlákshöfn og öflugt þjónustusvæði á Selfossi gerir staðsetninguna einstaklega góða enda stefnir í áframhaldandi uppbyggingu á Suðurlandi á næstu árum. Allt vinnur saman að öflugu samfélagi Aukið framboð húsnæðis í Árborg, einkanlega á Selfossi, hefur skapað enn öflugra samfélag með fjölbreyttri þjónustu fyrir heimamenn og gesti. Þrátt fyrir nokkuð erfiða stöðu á fasteignamarkaðinum um þessar mundir er mikilvægt að hægt sé að viðhalda uppbyggingu í hægum en öruggum skrefum. Slíkt skapar störf og það verða til íbúðir þegar “stíflan brestur” ef svo má orða og fleiri einstaklingar geta fjárfest í nýrri íbúð. Ljóst má vera að undirliggjandi eftirspurn sýnir sig þegar aðstæður þykja betri til íbúðakaupa. Sveitarfélagið Árborg steig nýverið jákvætt skref til lækkunar byggingarkostnaðar með því að lækka verulega gjald á byggingarrétti fyrir íbúðarhúsnæði eða um 30-40 prósent. Um leið var létt undir greiðsluferlið sem vonandi hjálpar bæði fyrirtækjum, einstaklingum og fjölskyldum að byggja upp heimili í Árborg til framtíðar. Þess má geta að sveitarfélagið á tilbúnar lóðir til úthlutunar á Selfossi og Eyrarbakka en einnig eru fleiri lóðir að koma inn bæði á Stokkseyri og Eyrarbakka á næstu mánuðum. Allt vinnur saman á endanum, við viljum áfram sjá öfluga íbúðauppbyggingu samhliða fjölbreyttri atvinnustarfsemi sem skapar störf og verðmæti fyrir samfélagið með aukinni velferð okkar allra. Höfundur er bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðisflokksins í Árborg Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bragi Bjarnason Árborg Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar