Innlent

Raf­magns­laust í Mos­fells­bæ og Grafar­vogi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Verið er að kanna hvað veldur rafmagnsleysinu.
Verið er að kanna hvað veldur rafmagnsleysinu. Vísir/Vilhelm

Rafmagnslaust er í Mosfellsbæ og hluta Grafarvogs vegna bilunar en unnið er að viðgerð. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum en þar segir að verið sé að kanna orsök rafmagnsleysisins. Það geti einnig haft áhrif á netsamband og afhendingu heits vatns, sér í lagi ofarlega í hæðum. 

„Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×