Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. ágúst 2026 11:23 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Vísir/Anton Brink Stjórn VR lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni á vinnumarkaði þar sem ljóst sé að forsendur kjarasamninga munu bresta. Hún hafnar málflutningi fulltrúa ríkisstjórnarinnar. „
Stjórn lýsir sig reiðbúna til lausnamiðaðs samtals við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins með það fyrir augum að kjarasamningar geti haldið. En komi ekkert annað til telur stjórn VR uppsögn kjarasamninga óhjákvæmilega,“ segir í ályktun stjórnarinnar. Þar segir að við undirritun gildandi kjarasamninga hafi verið fallist á launahækkanir sem ýttu undir verðbólgu í trausti þess að fyrirtæki héldu aftur af verðhækkunum. Sömuleiðis áttu stjórnvöld að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf. „Vonir stóðu til að þetta myndi leiða til lækkunar á verðbólgu og vöxtum. Andstætt fyrirheitum sínum hafa bæði ríki og sveitarfélög hækkað gjaldskrár úr hófi fram og stór fyrirtæki sem hafa verðmótandi áhrif hafa aukið við hagnað sinn á verðbólgutímum.“ Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Lítið er gefið fyrir málflutning fulltrúa ríkisstjórnarinnar og atvinnurekenda og hafnar stjórnin í raun honum. Forsendur kjarasamninganna séu brostnar. „Kjarasamningsbundin laun hafa hækkað minna en verðlag, auk þess sem launafólk, ekki síst barnafólk, situr uppi með gríðarlegan húsnæðiskostnað vegna svimandi hárra stýrivaxta. Vaxtagreiðslur fjölda heimila hafa tvöfaldast á gildistíma kjarasamninganna og það eykur enginn kaupmátt sinn í slíkum aðstæðum nema skuldlaust eignafólk,“ segir í ályktuninni. Stjórnvöld og fyrirtæki hafi því vanrækt skyldur sínar gagnvart kjarasamningum. VR hafi reynt mánuðum saman að benda á í hvað stefnir og kallað eftir aðgerðum en því kalli hafi ekki verið svarað. Allt bendi til þess að verðbólgan hækki.
Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira