Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. ágúst 2026 14:41 Vilhjálmur Árnason er bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Vísir Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði sameinað öðru lögregluembætti.
Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðsins sem fundaði í vikunni. Þar er vísað í bókun S. S. S. á þeirra eigin fundi. „S. S. S. tekur undir að mikilvægt sé að starfsemi lögreglu þróist í takt við breyttar aðstæður, að samstarf lögregluembætta sé eflt og sameiginlegir innviðir nýttir þar sem slíkt leiðir sannarlega til betri þjónustu, aukins öryggis og skilvirkari nýtingar fjármuna,“ segir í bókun þeirra. Hins vegar sé ekki hægt að líta fram hjá sérstöðu starfsemi lögreglunnar á Suðurnesjum og „því merkilega hlutverki sem embættið gegnir fyrir öryggi landsins alls“. Verkefnin frábrugðin Sérstaða Suðurnesjanna er einnig reifuð í bókuninni en embættið þar gegnir landamæragæslu, löggæslu og öryggismálum Íslands en Keflavíkurflugvöllur er í þeirra umdæmi. Því séu verkefni lögreglunnar á Suðurnesjum að umfangi og eðli frábrugðin verkefnum annarra. „Samhliða almennri löggæslu í ört vaxandi samfélagi sinnir embættið umfangsmiklum verkefnum tengdum landamæraeftirliti, Keflavíkurflugvelli, alþjóðlegu samstarfi, almannavörnum og viðbrögðum við náttúruvá. Að mati S.S.S. verður skipulag lögreglu að taka mið af þessari sérstöðu. Ekki er nægjanlegt að leggja sama skipulagslíkan að jöfnu yfir landið án þess að lagt sé sérstakt mat á þær þjóðaröryggislegu og samfélagslegu aðstæður sem eru fyrir hendi á Suðurnesjum.“ Sömuleiðis er bent á hversu mikilvægt sé að öflug stjórnun og viðbragðsgeta sé til staðar sé litið til síðustu ára á Reykjanesskaga.
Reykjanesbær Lögreglumál Lögreglan Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira