Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Freyja Þórisdóttir skrifar 17. ágúst 2026 17:27 Það skaut að mati sumra skökku við að öll skilti í veitingasölunni hafi verið á ensku, þá sérstaklega vegna þess að setrið er til minningar um íslenska rithöfundinn Þórberg Þórðarson. Facebook/Málspjall Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út. „
Yfir sumarið eru nánast allir gestirnir hérna erlendir ferðamenn,“ segir Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður menningarsetursins til tuttugu ára. Í Þórbergssetri, sem er á Hala í Suðursveit, eru sýningar helgaðar lífi og verkum Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar. Ekki eins ríkt í okkur fyrir 20 árum Æviágrip hans er hægt að nálgast á vefsíðu setursins en þar segir meðal annars að „að Þórbergur hafi lagt áherslu á að varðveita og skrá sögu og lifnaðarhætti alþýðunnar til að forða þekkingu frá glötun“. Þorbjörg tekur undir þetta og segir miður að þau á setrinu hafi lent í því að fara að hafa skilti á ensku. „Við erum nú líka með, á öllum gluggum, texta úr verkum Þórbergs á íslensku og við erum með matseðla og allt svoleiðis á íslensku,“ segir hún og bætir við að „en svo er fólkið sem starfar hérna á veitingahúsinu, það eru svo til eiginlega allir þar erlendir starfsmenn.“ Skilti á ensku voru sett upp fyrir um tuttugu árum síðan sem áttu að höfða sérstaklega til erlendra ferðamanna.Facebook/Málspjall Hún hugsi til baka til þess fyrir tuttugu árum þegar leikmyndahönnuðurinn Jón Þórisson setti upp skilti sem áttu að höfða til erlendra ferðamanna. Þar standi á einum stað „Journey to the past, unique exhibition“ og á öðrum stað „This way“. „Ég veit ekki hvort þetta er bara eitthvað sem var ekki eins ríkt í okkur þá, svona fyrir um tuttugu árum, því að ég er alveg hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona,“ segir Þorbjörg. Hafi efni á því að vera ósáttur Það sé fyrst í dag sem hún verði vör við óánægjuraddir í tengslum við skiltin, þetta hafi aldrei komið upp áður á þessum ríflega tuttugu árum sem hún hefur starfað sem forstöðumaður setursins. Þórbergssetur var opnað 1. júlí 2006 Þar er nú veitingasala, gestamóttaka, salerni, og tveir sýningasalir. Arkitekt og hönnuður hússins eru Sveinn Ívarsson og Jón Þórisson og hönnuður sýningar Jón ÞórissonVísir/Vilhelm „Ég var bara að opna tölvupóst þar sem Eiríkur Rögnvaldsson var mjög harðorður. Jú, jú, hann hefur alveg efni á því, það er allt í lagi,“ segir hún. Einhverjir höfðu velt því upp inni á Facebook-hópnum Málspjall hvort það væri ekki viðeigandi að hafa skiltin á Esperanto, alþjóðamálinu sem Þórbergur varði miklum tíma í að læra. „Það er ein setning hér á esperantó uppi á vegg: „Bonvenon al la kulturcentro Þórbergur“, sem þýðir velkomin í Þórbergssetur, það tekur hér líka á móti gestum.“ Þorbjörg segir alveg mögulegt að skiltunum í veitingasölunni verði skipt út en líkt og fyrr kom fram sé þetta nýkomið inn á hennar borð og ekkert hafi verið ákveðið enn sem komið er.
Ferðalög Ferðaþjónusta Veitingastaðir Íslensk tunga Sveitarfélagið Hornafjörður Söfn Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira