Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Árni Sæberg skrifar 18. ágúst 2026 15:19 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra og Ásgerður Ragnarsdóttir er verðandi hæstaréttardómari. Vísir Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ásgerður Ragnarsdóttir verði skipuð dómari við Hæstarétt frá og með 1. september 2026. Hún var einn fjögurra Landsréttardómara sem sóttu um embættið og voru metnir jafnhæfir til að hljóta skipun.
Í júní var tilkynnt að allir umsækjendur um embætti Hæstaréttar hefðu verið metnir jafnhæfir. Það voru þau Aðalsteinn E. Jónasson landsréttardómari, Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari, Eiríkur Jónsson landsréttardómari og Eyvindur G. Gunnarsson landsréttardómari. Í tilkynningu um ákvörðun dómsmálaráðherra um að leggja til við forseta að Ásgerður verði skipuð Hæstaréttardómari segir að hún hafi lokið lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 2004 og viðbótarmeistaragráðu (LL.M.) frá Cambridge-háskóla árið 2008. Hún hafi öðlast réttindi sem héraðsdómslögmaður árið 2005 og fyrir Hæstarétti árið 2016. Að loknu laganámi hafi hún starfað í dómsmálaráðuneytinu sem lögfræðingur frá júní 2004 til desember 2005, þegar hún hóf störf sem aðstoðarmaður dómara í Hæstarétti og hún hafi sinnt því starfi til í september 2008. Frá september 2008 til byrjun árs 2018 hafi hún starfað sem lögmaður á lögmannsstofu, þar af sem meðeigandi frá árinu 2012. Í upphafi árs 2018 hafi hún verið skipuð dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur og sinnt því starfi þar til hún hóf störf sem landsréttardómari í maí 2023. Hún hafi verið forseti Félagsdóms frá september 2021 og sé varadómari við EFTA-dómstólinn. Hún hafi setið í kærunefnd útboðsmála árin 2013 til 2021, meðal annars sem formaður nefndarinnar frá apríl 2019, verið varamaður í óbyggðanefnd í rúmlega tvö ár og varamaður í úrskurðarnefnd velferðarmála í fjögur ár. Þá hafi hún setið í stjórn Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands á árunum 2009 til 2017 og siðareglunefnd Lögmannafélags Íslands á árunum 2016 til 2018. Ásgerður hafi verið aðjúnkt við lagadeild Háskóla Íslands frá 2017 og hafi áður sinnt stundakennslu við skólann eða frá árinu 2009. Hún hafi skrifað ritrýnda fræðibók ásamt öðrum, tvo ritrýnda bókarkafla og fimm ritrýndar fræðigreinar með öðrum, ásamt því að sitja í ýmsum ritnefndum. Þá hafi hún komið að gerð lagafrumvarpa.
Dómstólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Sjá meira