Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. ágúst 2026 08:01 Árangur af símafríinu verður metinn þegar reynsla er komin á átakið. Getty Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir að innleiðing svokallaðs „símafrís“ í grunnskólum borgarinnar muni kosta allt að 75 milljónir króna. Bróðurpartur kostnaðarins er vegna kaupa og uppsetningar á geymslum fyrir símtæki nemenda.
Þetta kemur fram í svörum Steins Jóhannssonar, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, við fyrirspurn skóla- og frístundaráðsfulltrúa Samfylkingarinnar og Vinstrisins. Símarfríið á að taka gildi nú í haust. „Það er mat Reykjavíkurborgar að gera megi ráð fyrir að verulegur kostnaður geti fylgt því fyrir einstaka skóla að koma upp fullnægjandi aðstöðu fyrir geymslu tækja. Þar getur meðal annars verið um að ræða kostnað vegna skápa, hólfa, geymslukassa, eftirlits og verklags,“ segir í svörum skóla- og frístundasviðs. Þá segir að miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, meðal annars verðkönnun á heimasíðum erlendra birgja, megi gera ráð fyrir að innkaupsverð á skápum fyrir 7.000 farsíma sé á bilinu 25 til 50 milljónir. „Síðan má gera ráð fyrir um 25 milljónum króna fyrir aðstöðu og uppsetningu skápa. Heildarverkefnið gæti því kostað allt að 75 milljónir króna.“ Ekki kemur fram, né heldur var spurt að því, hvernig innkaupum og framkvæmd yrði háttað; hvort útfærslan sé á ábyrgð hvers skóla fyrir sig eða hvort framkvæmdinni yrði stjórnað miðlægt. Innleiðing símafrísins var samþykkt í borgarstjórn fyrr í sumar. „Með símafríi er átt við að nemendur noti ekki farsíma eða sambærileg snjalltæki á skólatíma, þar með talið í frímínútum og hádegishléum, nema með sérstöku leyfi starfsfólks eða vegna skilgreindra undantekninga,“ sagði í tilkynningu. „Skólarnir þurfa að hafa viðeigandi aðstöðu og skýrt verklag til að geyma síma á öruggan hátt frá upphafi til loka skóladags, en hver skóli mótar sér reglur um útfærslu þess. Lagt er til að áhrif símafrís verði metin með skipulegum hætti í samstarfi við háskólasamfélagið á tveggja ára tímabili. Við matið verði meðal annars horft til námsárangurs, líðanar nemenda og starfsumhverfis kennara og annars starfsfólks.“
Reykjavík Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Grunnskólar Samfélagsmiðlar Símanotkun barna Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Fleiri fréttir Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Sjá meira