Innlent

Flutninga­bíll á hliðinni í Ártúnsbrekku

Samúel Karl Ólason skrifar
Flutningabíllinn á hliðinni í Ártúnsbrekku.
Flutningabíllinn á hliðinni í Ártúnsbrekku. Vegagerðin

Flutningabíll valt á hliðina nærri Ártúnsbrekkunni í morgun. Það gerðist í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekkuna til austurs en bíllinn liggur fyrir utan veginn.

Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.

Lögreglumenn og slökkviliðsmenn eru á vettvangi. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er unnið að því að tryggja að olía leki ekki úr bílnum og út í jarðveginn.

Dælubíll er á leiðinni, þegar þetta er skrifað, til að dæla olíu af tönkum vörubílsins og síðar verður kranabíll fenginn til að rétta bílinn við.

Umferð gengur ágætlega um svæðið en þó ekki um aðreinina, þar sem bíllinn valt.

Hægt er að fylgjast með gangi vinnunnar hér á vef Vegagerðarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Einn var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×