„Þetta er sagt af mikilli virðingu“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. ágúst 2026 14:57 Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri Vísir/Lýður Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig. Þeir eru nú 8 prósent. Seðlabankastjóri var ómyrkur í máli á kynningarfundi vegna stýrivaxtahækkunar og kallaði eftir ábyrgð af hálfu aðila vinnumarkaðarins. Vildu þeir stýrivaxtalækkun gætu þeir sjálfir gripið til aðgerða, til að mynda með því að semja upp á nýtt og fresta launahækkunum.
Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Meðal þess sem kom fram á fundi nefndarinnar á morgun er að hagvöxtur er minni en Seðlabankinn spáði, atvinnuleysi eykst, húsnæðismarkaðurinn kólnar og einkaneysla dregst saman. Vereðbólga mælist 5,3 prósent og er einkum drifin áfram af opinberum gjaldahækkunum og innflutningi.Vísir/Seðlabankinn Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir að það sem réttlæti hækkun stýrivaxta í dag sé fyrst og fremst aukin verðbólga, sem sé drifin áfram af launahækkunum á opinberum markaði, skattahækkunum, hækkunum á ýmsum opinberum gjöldum og hækkunum á ýmsum innfluttum vörum vegna stríðsátaka. „Verðbólga er 5,3 prósent og við þurfum að ná henni niður. Það sem gerðist á þessu ári er sambland af opinberum hækkunum og hækkunum á olíuverði og annarri innfluttri vöru sem hafa tekið verðbólguna upp. Við höfum brugðist við með þremur vaxtahækkunum og við vonum að með því hafi verið tekið fyrir meinið,“ segir Ásgeir. Einkaneysla dregst verulega saman.Vísir/Seðlabankinn Ásgeir auglýsti á fundi Peningastefnunefndar í morgun eftir ábyrgð frá aðilum vinnumarkaðarins. Ef þeir vilji sjá lægri vexti, séu hlutir sem þeir geti gert. Það sé til dæmis hægt að endursemja og fresta launahækkunum eða bara jafnvel bíða með þær. Aðspurður um hvort hann sé að senda verkalýðsfélögum tóninn svarar Ásgeir því neitandi. „Í fyrsta lagi þá er ég ekki að senda þeim tóninn. Alls ekki, þetta er sagt af mikilli virðingu fyrir þessum aðilum. Það sem ég er að benda á er að ef þeir vilja sjá lægri vexti, þá séu ákveðnir hlutir sem þurfa að gerast. Ég er að tala um verkalýðsfélög og atvinnurekendur. Þetta er náttúrulega sameiginleg ábyrgð þeirra. Ef þeir vilja sjá lægri vexti eru hlutir sem þeir geta gert. Síðustu ár hafa verið fordæmalausar launahækkanir og aukinn kaupmáttur, sem er gott. En við óskum eftir samfylgd af þeirra hálfu í málinu svo við getum byrjað á að lækka vexti.“ segir Ásgeir. Byrðarnar lendi á heimilum Aðspurður um hvort byrðarnar lendi ekki að stórum hluta á heimilum landsins sem þurfi nú að þola bæði versnandi atvinnuhorfur og hærri stýrivexti til að ná verðbólgunni niður svarar Ásgeir. „Að einhverju marki, já. Kaupmáttur heimilanna hefur á móti aukist umtalsvert síðustu ár. Hér kemur að einhverju marki að því hvernig við tökumst á við hagstjórnina. Peningastefnan náttúrulega bregst við stöðunni í ríkiskerfinu. Auðvitað erum við að hækka vexti til að hægja á kerfinu til að ná verðbólgunni niður til að tryggja stöðuleika. Það eru tveir aðrir armar líka, opinberi geirinn og vinnumarkaðurinn og við óskum eftir samfylgd frá þeim.“
Seðlabankinn Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira